breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég er hv. þingmanni hjartanlega sammála um að þetta er ótrúlega langur tími. Og þessi langi afgreiðslutími er stef sem hefur verið töluvert rætt hér í þessum sal, m.a. þegar þingmenn stjórnarandstöðu hafa einmitt verið að beina spurningum til ráðherra málaflokksins. Þetta hefur líka verið töluvert rætt í umhverfis- og samgöngunefnd og ég þekki ekki nákvæmlega hvað þar býr að baki. En það blasir auðvitað við að þessi tími er allt, allt of langur og það hlýtur að þurfa að fara í það að skoða alla þá þætti sem undir eru, sem er sjálfstætt markmið, um það hvernig megi hraða ferlum — og ferli í þessu samhengi. En með þetta tiltekna, afmarkaða mál þá er rauði þráðurinn í rökstuðningi frumvarpsins að þjónustugjöldin geti a.m.k. hjálpað til í þeim efnum því að þessi langa bið er auðvitað í öllu tilliti algerlega óboðleg. En það dugar ekki að benda eingöngu (Forseti hringir.) á stofnanirnar. Það þarf auðvitað að rýna hvað það er sem gerir það að verkum að málin dragast svo úr hömlu.