breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir gott andsvar og góða spurningu sem hann varpaði fram. Mun þetta frumvarp skila sér í aukinni skilvirkni í þessum málaflokki? Það er ekki hægt að svara já eða nei en ef þetta frumvarp er framkvæmt með réttum hætti og, líkt og kemur fram í umsögn Landsvirkjunar sem hv. þingmaður vísaði í, viðeigandi magn af fjármagni fylgir þessum þjónustugjöldum og það verði passað upp á stöðugildi t.d. innan Orkustofnunar, þá ætti þetta nú að flýta aðeins fyrir leyfisveitingaferlinu. Það sem ég held að þessi ríkisstjórn hafi ekki alveg áttað sig á er hvernig það á að nálgast þessar leyfisveitingar. Nú eru virkjunarleyfi einnig háð einhverjum skilyrðum sem koma fram í vatnalögum, virkjunarleyfi krefjast aðkomu ýmissa stofnana og samkvæmt því sem ég hef séð þá stefnir þessi ríkisstjórn á að sameina margar og ýmsar stofnanir sem sjá um afgreiðslu leyfa og mála sem eru tengd umhverfis-, náttúru-, menningar- og minjamálum. Þannig að ég velti því fyrir mér hvernig ríkisstjórnin sér fyrir sér að þetta muni ganga eftir, þetta fyrirkomulag, og hvort þessi stofnanasameining muni skila sér í aukinni skilvirkni, jafnvel eftir að það er búið að sameina stofnanir.
Svo kom hv. þingmaður líka inn á fyrirkomulag rammaáætlunar og það er vissulega rétt að rammaáætlun hefur sætt mikilli gagnrýni. En ég er á þeirri skoðun að rammaáætlun sjálf sé rosalega gott fyrirkomulag sem ég er mjög glöð með að við tókum upp en óskilvirknin felst í því hver sér um þennan málaflokk (Forseti hringir.) og hann hefur verið í umsjón Sjálfstæðisflokksins síðustu, ja, ég veit ekki hversu mörg ár.