154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:11]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kemur hérna inn á margt í sínu andsvari og ég þakka kærlega fyrir skoðanaskiptin. Já, við erum auðvitað með þetta mál undir og fleiri mál á málefnasviði þessa tiltekna ráðherra og eitt af því sem ráðherrann hefur boðað eru ákveðnar sameiningar stofnana á þessu málefnasviði og hv. þingmaður og fleiri eru auðvitað að tengja þetta saman, þ.e. hver afurðin úr þessu máli verður í samhengi við þetta nýja stofnanaumhverfi sem verður í þessu ráðuneyti þannig að það er ýmsu ósvarað í þessu. En hv. þingmaður kemur einmitt inn á rammaáætlun og að það sé kannski í sjálfu sér ágætisfyrirkomulag til að vinna eftir.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, algjörlega óháð því hvaða skoðun við höfum á því hvort það sé orkuskortur í landinu, hversu mikið þurfi að virkja eða ekki — um þetta eru auðvitað mjög deildar meiningar í samfélaginu og menn rökstyðja sín sjónarmið með alls konar hlutum. Sumir vilja meina að það sé hægt að bæta flutningskerfi raforku, nýta virkjanir betur og annað í þeim dúr sem ætti að vera nóg í orkuskiptin á meðan aðrir telja að það sé bara fráleitt að það dugi til. Eftir sem áður, og nú kem ég bara að pólitíkinni í málaflokknum, erum við alltaf með þessa sömu stöðu uppi, við erum alltaf með flokkana á jöðrunum, VG og Sjálfstæðisflokkinn, þar sem ber svo rosalega mikið í milli. Mér hefur alltaf fundist og hef nefnt það í fleiri málum að bara þessi staða er síðan að læsa inni alls konar góð mál sem gætu verið til framfara fyrir land og þjóð, algerlega óháð því hver þingmeirihlutinn er hverju sinni. Mig langaði kannski að spyrja hv. þingmann um það, að burt séð frá því í hvora áttina menn vilja fara þá erum við bara læst í þessari stöðu að mál þokast ekki á meðan það er svona langt á milli stjórnarflokkanna og það kannski breytist ekki mikið á meðan þessi ríkisstjórn situr, eða hvað?