breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða seinni spurningu. Jú, það er ákveðin pattstaða sem hefur myndast í stjórnmálum. Nú er ég náttúrlega svolítið ný í stjórnmálum líkt og hv. þingmaður hefur kannski tekið eftir eða gerir sér grein fyrir vegna ungs aldurs míns. En ég byrjaði fyrst að fylgjast með stjórnmálum almennilega árið 2017 þegar þessi ríkisstjórn myndaði sitt bandalag í fyrsta skipti. Það var svona ákveðið lán í óláni fyrir ríkisstjórnina að það kom upp mjög erfið staða sem Covid hafði í för með sér og þau náðu einhvern veginn að hanga saman. En þegar hlutir eru byrjaðir að færast í eðlilegt horf, eins og við sjáum á þessu kjörtímabili, frá og með árinu 2021, þótt það sé ekkert fullkomið í samfélaginu og það er margt sem má bæta, þá sjáum við þessa pattstöðu sést miklu skýrar en hún gerði á síðasta kjörtímabili. Við sjáum það bara núna, svo ég taki mjög skýrt dæmi, í þessum þinglokum hvaða mál það eru sem þessir tveir flokkar sem eru algerlega á sitthvorum ásnum ná ekki að koma sér saman um og m.a. eru það orkumálin. Mér þykir það svolítið leitt af því að ég held að við séum bara komin það langt á leið á þessu kjörtímabili að almenningur vill kannski fá að sjá á hverju stjórnarflokkarnir ætla að keyra í næstu kosningum. Og ég velti því nú líka fyrir mér sem svona inn á milli meðlimur þessa löggjafarþings: Um hvað verður kosningabaráttan? Hvað verður kosningamottóið hjá þessum flokkum og hver verður svona helsti sigurinn sem þau eru að fara að keyra á í næstu kosningum? Það eru svo sannarlega ekki orkumál, það liggur alveg skýrt fyrir.