154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:15]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Ég hjó eftir umræðunni hjá henni í sambandi við virkjanir. Hvort vegur meira; virkjun, vatnsaflsvirkjun, gufuaflsvirkjun eða náttúran? Hvar liggur munurinn í því hvort við eigum að virkja eða hvort við ættum ekki að virkja vegna þess að það myndi valda óafturkræfum skaða fyrir náttúruna? En þá spyr maður sig líka á móti um kolabrennslu, kjarnorku, olíubrennslu. Vegur það jafn mikið á móti? Ef við tökum vatnsaflsvirkjanir þá erum við að virkja vatnsafl sem er á leiðinni til sjávar og hringrásin heldur áfram. Spurningin er bara hvort við getum gert þetta með lágmarksinngripi í náttúruna og gengið þannig frá og skilað henni næstum því jafn góðri. En það segir sig sjálft að við munum finna upp nýjan orkugjafa. Við munum einhvern tímann finna upp orkugjafa sem gerir það að verkum að við getum hætt þessu inngripi í náttúruna, vonandi. En spurningin er bara: Hvenær eigum við að segja stopp, við ætlum ekki að gera þetta? Getum við gert það og stoppað vatnsaflsvirkjanir, á meðan við erum að brenna olíu, við erum með kjarnorku, við erum með kolabrennslu? Við sjáum bara ástandið t.d. í Miðausturlöndum og Asíu þar sem mengunin er alveg gífurleg og þar eru tvígengisvélar og alls konar mengunarvaldar sem eru margfaldir á við okkar þannig að það litla sem við erum að gera virkar ekki, liggur við.