154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:20]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég er innilega sammála henni að mörgu leyti. En ef við tölum um 99 komma eitthvað prósent af hreinni orku hér, endurnýjanlegri orku, þá rekst maður samt alltaf á þessa ótrúlegu hræsni að það er skrifuð á okkur kjarnorka, það er skrifuð á okkur olíubrennsla og kolabrennsla vegna þess að við seljum kvóta. Við erum búin að búa til kerfi. Jú, við erum voða hrein og flott og við getum státað okkur af því en þá bara búum við til kvóta til þess að selja, til þess að umhverfissóðar geti keypt kvótann og haldið áfram að vera umhverfissóðar. Ég hef áhyggjur af því að við séum alltaf að búa til einhverja hvata og ætlum að vera ofboðslega umhverfisvæn en erum alveg þveröfugt. Ég hef tekið sem dæmi að mér blöskra alveg svakalega þessi áform í Krýsuvík um að dæla niður 250.000 tonnum á mánuði, 3 milljónum tonnum af ári af einhverjum koltvísýringi, sem við ætlum að ná í til Evrópu, blandað saman við okkar hreina vatn. Mér finnst það svo mikil heimska og vitleysa. Á sama tíma erum við með eldgos við hliðina sem mengar og mengar. Þannig að við erum alltaf að, hvað á maður að segja, pissa í skóinn okkar til að reyna að halda á okkur hita en það bara virkar ekki vegna þess að við erum með svoleiðis vitleysu í þessum umhverfismálum. Þess vegna segi ég að við þurfum líka að sjá til þess að þegar við erum að virkja, þá séum við að gera það og fyrir náttúruna. Það segir sjálft að ef við erum með álver sem er knúið með rafmagni þá er það miklu betra fyrir okkur að hafa það heldur en annars staðar knúið með kolum. Það hlýtur að vera umhverfisvænna, það segir sig sjálft. Kannski er hv. þingmaður sammála því en kannski hefur hún allt aðra skoðun á því.