breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Til að svara spurningunni hreint út: Við berum ekki ábyrgð á öllum heiminum. Við berum ekki ábyrgð á því ef eitthvert tiltekið álver sem fær ekki að nýta og kaupa stórt hlutfall af raforkunni okkar hér fer að framleiða ál einhvers annars úti í heimi. Ég meina, við erum með okkar sjálfstæðu markmið líka og við erum búin að skuldbinda okkur, erum með alþjóðlegar skuldbindingar um að ná einhverju hlutfalli af losun o.s.frv.
Hvað varðar hvatakerfið sem hv. þingmaður kom inn á þá langar mig aðeins að staldra við það. Þetta er bara mjög góður punktur. Það sem byrjaði sem hvatakerfi, fjármagnshvatar til að hvetja t.d. stóriðjuna til að menga minna með því að veita þeim umbun fyrir það í formi fjármagns, vissulega, breyttist einhvern veginn í svona afsökunarkerfi. Við erum farin frá því að búa til fjármagns- og efnahagslega hvata fyrir mengandi stóriðju til að hætta að menga yfir í þetta: Ef þú mengar þá þarftu að borga fyrir það, en þú mátt samt enn þá menga. Það þykir mér afskaplega leitt.
Hv. þingmaður kom síðan inn á annan punkt sem mig langar að staldra við, að ef við virkjum meira þá þurfi að tryggja að það sé gert með réttum hætti. Það er vissulega rétt. En eins og staðan er núna, eins og ég kom inn á líka í ræðu minni, þá erum við ekki með neina löggjöf sem tryggir það að þessi afgangsorka, sem fer ekki til stórnotenda og fer ekki til almennra heimila, fari í orkuskiptin, fari í græna nýsköpun eða eitthvað sem er tengt grænum fjárfestingum. Það er það sem stjórnvöld þurfa helst að byrja á og er það sem þessi ríkisstjórn þarf að byrja á og fókusera á, að setja á fót löggjöf um forgangsröðun afgangsorku og lögfesta hugtakið orkuskipti.