breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða hérna merkilegt frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar. Ég ætla að halda áfram með það sem við hv. þingmaður vorum að ræða hér áðan, það er nefnilega að mörgu leyti merkilegt. Ef við værum skynsöm og hefðum fullt af afgangsorku, hvað ættum við að gera við hana? Ég segi bara: Byggjum helling af gróðurhúsum, verum sjálfbær með grænmeti og alls konar ræktun, og þá er hægt að láta þá sem vilja fara út í svoleiðis fá raforkuna á kostnaðarverði, liggur við, með mjög lítilli álagningu. Þá værum við búin að slá margar flugur í einu höggi. En höldum okkur við þetta frumvarp um leyfisveitingar Orkustofnunar og þjónustugjöld. Það er nefnilega þannig, eins og kom fram í síðustu ræðu minni, að stundum er skynsamlegt að taka sér góðan tíma til að skoða mál frá öllum hliðum þótt vissulega megi alltaf stefna að aukinni skilvirkni. Í stuttu máli er afgreiðsla virkjunarleyfa tímafrek vegna umfangs verkefnisins, eins og ég kom að áður, flækjustigs, fjárskorts, tafa vegna ágreinings og ófullnægjandi umsókna en með vonandi auknu fjármagni á grundvelli þessa frumvarps ætti Orkustofnun að geta flýtt ferlinu án þess að fórna gæðum eða vandvirkni. Við skulum bara vona heitt og innilega að það sé tilgangurinn.
Við hérna á Íslandi erum í einstakri stöðu þegar kemur að raforkuframleiðslu, eins og hefur margoft komið hérna fram, þar sem nánast öll raforkuframleiðsla kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum, aðallega vatnsafli og jarðvarma. Þetta þýðir á mannamáli að Ísland er ekki háð innflutningi á jarðefnaeldsneyti til raforkuframleiðslu eins og mörg önnur lönd. Mikið hefur verið rætt um raforkuskort undanfarið. En raforkuskortur er ekki alveg til staðar, vandamálið er meira það að búið er að selja svo mikið af raforkunni með langtímasamningum til stóriðjunnar. Það er hreinlega staðreynd því að almenningur er ekki að nota, eins og oft hefur komið hérna fram, nema 5% af þeirri raforku sem við framleiðum. Hins vegar hefur orðið mikil aukning í eftirspurn eftir raforku á undanförnum árum, m.a. vegna stórfelldrar uppbyggingar í orkufrekum iðnaði eins og gagnaversiðnaði og þetta hefur sett aukið álag á raforkukerfið. Þar má t.d. horfa á þetta ótrúlega tilgangslausa og undarlega fyrirbrigði sem er að vera að grafa fyrir bitcoin með einhverjum risatölvukerfum sem taka gífurlega orku til þess að finna fjármuni sem einhverjir hafa á einhvern hátt neglt inn í geymslu og hafa gleymt aðgangsorðinu og geta ekki nálgast þá. Þetta er eiginlega stórmerkilegt fyrirbrigði, hvað á ég að segja, heimsku. En látum það liggja á milli hluta.
Á álagstímum, sérstaklega á köldum vetrardögum þegar rafmagnsnotkun er mest, getur flutnings- og dreifikerfi raforku átt í erfiðleikum með að anna eftirspurn. Þetta getur leitt til skammtímaaflskerðinga eða spennuvandræða á ákveðnum svæðum, þó að ekki sé um eiginlegan raforkuskort að ræða. Til að mæta eftirspurn og tryggja afhendingaröryggi til lengri tíma litið er mikilvægt að byggja upp ný orkuver og styrkja flutningskerfi raforku. Það er einmitt ein ástæðan fyrir því að sótt er um leyfi fyrir nýjum virkjunum. Þótt skortur á raforku sé ekki beinlínis vandamál eins og er þá er mikilvægt að horfa til framtíðar og tryggja nægt framboð raforku til að mæta vaxandi þörfum á komandi árum og áratugum. Það krefst fjárfestingar og uppbyggingar nýrra virkjana en slíkt þarf ávallt að gera í fullkominni sátt við umhverfið og samfélagið.
Við vorum að tala um þessa orkupunkta, þegar við höfum lent í því að það vantar orku, og þá hefur þurft að skammta orku til stóriðju og knýja fiskimjölsverksmiðjur með olíu. Þetta er, eins og við vitum, ákveðið vandamál eins og í Danmörku þar sem ég þekki til, ég hef komið inn á það áður, þar er fólk að eltast við það liggur við allan sólarhringinn hvenær hagkvæmast er að þvo þvott, hvenær hagkvæmast er að elda og hvenær er ódýrast að fá raforku til að hlaða bílinn. Ég þekki einhverja sem eru orðnir sérfræðingar í því að finna út úr því hvenær það er hagkvæmast og eltast við þessa ódýru orku vegna þess að fólk ræður ekki við rándýra orku á mestu álagstímum. Ég vona heitt og innilega að við eigum ekki eftir að lenda í þeirri krísu. Þess vegna þurfum við að tryggja það bæði með landsneti dreifingar á orku og virkjunum að það sé engin hætta á því að við lendum í þeirri aðstöðu. Eitt af því sem við þurfum líka að tryggja er að tengjast ekki með kapli, rafmagnskapli, við Evrópu vegna þess að þá gilda nákvæmlega sömu lög um okkur og þá. Það er alveg á hreinu. Þá er okkar ódýra raforka fyrir heimilin farin fyrir bí og þetta er eiginlega byrjað að gliðna með þessum milliliðum.
En þó að Ísland sé í sterkri stöðu hvað varðar raforkuöryggi er framtíðaráskorun að viðhalda jafnvægi milli vaxandi eftirspurnar og sjálfbærrar orkuvinnslu sem aftur kallar á skýrt regluverk, skilvirka málsmeðferð og vandaða ákvarðanatöku þegar kemur að veitingu virkjunarleyfa.
Ég vil fjalla aðeins um þær vendingar sem urðu hér í síðustu viku þegar við ræddum um raforkuöryggi. Þá barst umsögn frá Alþýðusambandinu sem varðaði breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar við frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Alþýðusamband Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið sem felur ekki í sér heildstæða lausn á þeim vanda sem steðjar að vegna þess að stjórnvöld hafa ekki tryggt orkuöryggi fyrir heimili og smærri fyrirtæki né vernd fyrir verðhækkunum á raforku.
Ljóst er að gera þarf breytingar á raforkulögum sem eru til þess fallnar að tryggja orkuöryggi almennings og smærri fyrirtækja og verja almenning fyrir hækkunum á raforkuverði sem getur haft víðtæk áhrif á kjör heimilanna í landinu. Það frumvarp sem hér um ræðir er ekki til þess fallið að ná þessum markmiðum heldur ber það einkenni illa ígrundaðs bútasaums sem keyra á í gegn í miklum flýti.“
Það var sláandi að fá þessa umsögn í miðri umræðunni og kannski er það ekki furða að málið hafi verið tekið af dagskrá þessa þingfundar. Í kjölfarið birtust nokkrar fréttir um þessa umsögn og rætt var við ýmsa um málið. Ég veitti því sérstaka athygli þegar Guðmundur Kristjánsson, oft kenndur við Brim, gagnrýndi þá breytingu sem meiri hluti atvinnuveganefndar lagði til í málinu. Það er ekki á hverjum degi sem við sjáum forstjóra stórútgerðar gagnrýna frumvörp sem koma svo gott sem beint úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins. Það má segja að ríkisstjórnin sé búin að missa umboðið vegna árangursleysis og stefnuleysis í orkumálum.
Það er af mörgu að taka þegar við ræðum um Orkustofnun og verkefni hennar og það má með sanni segja að þessi mál þarf að ræða vandlega og það er það sem við höfum verið að gera hér, að ræða þessi mál mjög vandlega og fara vel yfir það hvernig staðið er að því að koma á þjónustugjöldum vegna eftirlits og leyfisveitinga fyrir Orkustofnun. Þessi þjónustugjöld þurfa auðvitað, eins og hefur komið skýrt fram, að endurspegla og standa undir þeim kostnaði sem leyfisveitingar og allt annað ferli í málinu kostar og það verður auðvitað ákveðin áskorun. Ég vona heitt og innilega að það verði tryggt að bæði verði þetta til þess að flýta afgreiðslu mála og að séð verði til þess að í þessum málum verði komið á þannig kerfi að gjöldin standi fullkomlega undir öllum þeim kostnaði sem af þjónustunni á að hljóta og það verði til þess að flýta öllum málum í gegn þannig að þessi langi dráttur sem hefur verið á mörgum málum stoppi.