154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:35]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni sína ræðu. Það er freistandi að fara út um víðan völl þegar við ræðum um orkumálin vegna þess að þau snerta svo marga þætti samfélagsins okkar. Hv. þingmaður nefndi t.d. þá skrýtnu stöðu sem er uppi varðandi forgangsröðun raforku og það sé ekki hægt að finna einhverjar leiðir til að veita grænni nýsköpun alvöruforskot á grunni þeirrar endurnýjanlegu orku sem við framleiðum ofgnótt af. Síðan er þessi fína lína í orðanotkun á milli þess sem hefur verið kallað orkuskortur, sem er kannski of hart orð til að ná utan um það að það er einfaldlega uppselt. Það er framleidd meiri orka á hvert mannsbarn á Íslandi en í nokkru öðru landi. Fyrirtækin hafa bara ekki endilega sýnt ráðdeild í því að ráðstafa þeirri orku ekki of mikið. Þetta hefur sérstaklega komið niður á fólki í dreifðum byggðum sem hefur stólað á skerðanlega raforku til að halda hita á húsum sínum um veturinn. Sú orka var allt í einu bara uppseld. Það er ákveðinn skortur en hann stafar ekki af því að það sé svo lítið framleitt af raforku heldur einfaldlega vegna þess að það er búið að ráðstafa henni í alls konar, hvað á ég að segja, minna mikilvæg verkefni en að halda hita á fólki.

Ég sé að tíminn er að renna út. Nú sinnir Orkustofnun svo ótal mörgum mikilvægum verkefnum í að verja auðlindirnar okkar, m.a. grunnvatn hringinn í kringum landið. Nú hefur hv. þingmaður gjarnan rætt niðurdælingarverkefnið til að koma koltvísýringi ofan í jörðina. Það leiðir auðvitað hugann að því gríðarlega vatnsmagni (Forseti hringir.) sem þarf að ná upp fyrst til þess að geta blandað því saman við koltvísýring og dælt því niður. Telur hv. þingmaður að Orkustofnun, óháð þjónustugjöldum, (Forseti hringir.) sé í færum til að standa almennilega vörð um grunnvatnsauðlindina eins og sakir standa?