154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:38]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir hans fyrirspurn. Þarna hitti hann á minn veikasta punkt, ég verð að segja alveg eins og er. Ekki bara að þetta sé gífurlegt magn, 75 milljón lítrar af hreinu vatni, 2.500 lítrar á sekúndu, þetta er svo gífurlegt magn að maður er eiginlega bara orðlaus yfir þessu ótrúlega magni, heldur gleymum við líka allri þeirri raforku sem þarf af því að þetta á að dælast niður með raforku, það þarf raforku til þess að dæla þessu niður. Við getum rétt ímyndað okkur þá krafta og þá orku sem þarf til að dæla þessu niður á 3 km dýpi. Það er með ólíkindum að við skulum í fyrsta lagi láta okkur detta þetta í hug, í öðru lagi að framkvæma þetta og í þriðja lagi að stunda þá vitleysu að ætla að fara að flytja þetta með skipum, mengandi skipum, frá Evrópu hingað. Á sama tíma, eins og ég segi alltaf, þá erum við að flytja ruslið okkar út til þess að láta brenna það í Evrópu.

Í þessu tilfelli erum við ekki að hugsa um náttúruna. Í þessu tilfelli erum við að hugsa um peninga, gróða, ekkert annað. Það er alveg ömurlegt til þess að vita, ég segi það fyrir mitt leyti. Svo er annað, hv. þingmaður fór að tala um húshitun og rafmagn. Það kom svo vel fram hérna þegar gosið var og rauf heitavatnsleiðsluna á Suðurnesjum, þá var ekki til raforka. Jú, hún var til en það var ekki hægt að koma raforku til þeirra á Suðurnesjum vegna þess að við höfum verið að slugsa með að ganga frá línutengingum. Við höfum verið að slugsa við þetta um allt land. (Forseti hringir.) Það er eins og við séum ekki í sambandi við það að drífa í svona einföldu hlutum. Þess vegna erum við að missa orku og orka fer til spillis.