breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Já, þetta eru svakalegar tölur í tengslum við niðurdælinguna, 2.500 sekúndulítrar eru ekkert smotterí. En ásókn í grunnvatn er í gangi víðar. Við höfum rætt hér í þessari umræðu Þorlákshöfn t.d., þar sem er ýmiss konar landeldi og vatnsútflutningur og það er ýmist sótt í ferskvatn eða jarðsjó sem eru svona tvö lög í grunnvatninu, annað salt og hitt ekki salt. Ef ég man rétt eru áformin í Þorlákshöfn á svipuðum skala þegar allt er talið saman eins og í niðurdælingarverkefninu. Ég er ekki viss um hins vegar að þekkingin sé til, vísindalegi grunnurinn varðandi samlegðaráhrifin og samspilið á milli þessara tveggja ólíku laga, saltvatnsins og ferskvatnsins, þegar farið er að draga af öðru þeirra kannski meira en hinu. Á hvaða tímapunkti fer þetta að blandast? Á hvaða tímapunkti rofna skilin á milli jarðsjávar og ferskvatns í grunnvatninu þannig að of mikil ásókn frá atvinnurekstri fari að hafa neikvæð áhrif á ferskvatnið sem er nauðsynlegt íbúunum á svæðinu til lífsviðurværis?
Hér held ég að sé dálítið gott dæmi sem tengist Orkustofnun. Þó að þjónustugjöld séu mikilvæg til að hún sligist ekki undan stórum einstökum verkefnum þá þarf líka að styrkja grunnstarfsemi stofnunarinnar þannig að hún geti svarað því með öryggi hvað sé óhætt og hvað ekki þegar kemur að því að nýta auðlindir sem fólk alls staðar um landið stólar á að séu í lagi, séu hreinar og öruggar.