breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, þetta er eiginlega sláandi. Það er kannski skrýtið, ef við höldum áfram með þetta niðurdælingarverkefni, og það sem mér finnst eiginlega merkilegast í því samhengi er að þeir ætla að nota þetta óhemjumagn af hreinu vatni við Straumsvík, en í Krýsuvík ætla þeir að nota sjó. Ég hef ekki fengið skýringu á því hvers vegna. Ég held nefnilega að það gangi verr að gera þetta með sjó vegna þess að sjór er saltur og þá hlýtur saltvatnið að spila inn í. Ég spyr mig: Ef við tökum svona gífurlegt magn af vatni — þeir segja að þetta sé afgangsvatnið sem sé hvort sem er á leið út í sjó, en einhverra hluta vegna er þetta vatn búið að streyma þarna og ef við tökum það allt, hvað verður þá, hvað skeður? Ég sá skýrslu, ég man ekki frá hverjum, en það var einhver sem skrifaði skýrslu og hafði miklar áhyggjur af því að þetta myndi valda súrnun sjávar. Ef einhver hefur áhyggjur af því að svona hlutir geti valdið súrnun sjávar og þar af leiðandi skaðað lífríkið þá eigum við að hugsa okkur tvisvar um.
Síðan er annað sem við ættum líka að hugsa um, en það á að fara að setja upp raforkuver, bæði til að framleiða raforku og heitt vatn í Krýsuvík sem er skilgreint áhættusvæði vegna eldgoss. Ég spyr mig: Hvernig í ósköpunum ætlum við að láta okkur detta í hug að fara að bora þar? Þar ætlar Carbfix líka að dæla niður, í holur niður á 3 km dýpi þar sem er jafnvel spáð að gæti komið eldgos. Og eins og ég hef alltaf sagt, ef það kemur jarðskjálfti af því að dæla niður 1.000 tonnum á mánuði, hvernig skjálfti kemur þá af 250 sinnum meira magni á mánuði? Ég spyr mig. Það hlýtur að vera 250 sinnum meiri skjálfti.