154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:44]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir áhugaverða ræðu. Er þingmaðurinn farinn úr salnum? Það sem mig langaði til að ræða við hann var kannski bara afleiðing þeirrar stöðu að hafa verið með þrjá þetta ósamstiga flokka hér í ríkisstjórn í þetta langan tíma. Við erum að ræða hér einn anga orkumálanna, þessa tilteknu gjaldtöku, en stóra myndin er auðvitað sú sem hún er, sem við höfum verið að ræða hér á liðnum dögum. En af því að hv. þingmaður nefndi þá stöðu að við okkur blasir ákveðin innviðaskuld, að stofnanir séu margar aðframkomnar af verkefnum, þá langaði mig kannski til að spyrja þingmann Flokks fólksins að því hver afstaða hans væri um það hvernig fjármagna ætti þær aðgerðir sem eru í kortunum hvað þetta varðar. Er hann á því að við þurfum frekari skattheimtu við? Telur hann lántöku vera boðlega fyrir ríkissjóð í þeirri stöðu sem nú blasir við okkur eða eru lántökur svarið?