breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu en mig langaði að ræða við hann um ákveðinn þátt í þessu máli sem er að hér er a.m.k. verið að setja gjaldskrá utan um þjónustu stofnunar sem þiggjendur þjónustunnar þurfa að greiða fyrir. Hér erum við að tala um leyfisveitingaferli sem felur í sér töluvert mikla vinnu og framlag o.s.frv. og a.m.k. á þá að fara að greiða fyrir það gjald sem það í raun krefst af þeim sem eru að vinna vinnuna. Mig langaði bara að velta því upp með hv. þingmanni hvort það sé ekki svolítið merkilegt hvað er í raun lítið um þetta í íslensku stjórnkerfi, þ.e. að þeir sem njóti góðs af þjónustu stofnana greiði fyrir þá þjónustu. Þá er ég t.d. bara að tala um að sjávarútvegskerfið okkar stendur varla undir sér að því leyti til að allar þessar stofnanir sem þurfa að tryggja að sjávarútvegurinn gangi smurt fyrir sig — þá er ég að tala um Hafrannsóknastofnun, ég er að tala um Fiskistofu og fleiri vettvanga sem eiga að fylgjast með því að rétt sé farið með og að öryggi sé haft í fyrirrúmi o.s.frv. — fá varla nægan pening til að reka sig, geta ekki verið með almennilega stjórnsýslu, geta ekki verið með almennilegt eftirlit o.s.frv. vegna þess að þær fá ekki nógu mikinn pening. Annað dæmi um þetta er auðvitað Samkeppniseftirlitið, alveg sérstaklega skerandi dæmi þar sem viðskiptalífið hefur í raun sprungið út, orðið mjög stórt á meðan stöðugildin í Samkeppniseftirlitinu hafa haldist nokkurn veginn jafnt og þétt, þó að þjónustan sem Samkeppniseftirlitið þarf að veita sé orðin mikið umfangsmeiri.
Mig langaði að velta upp þessum anga af þessu máli sem er að hér er a.m.k. verið að setja inn kröfu um að þeir sem njóti þjónustunnar greiði fyrir hana. Getur hv. þingmaður ekki tekið undir með mér í því að svo ætti að vera um fleiri stofnanir í samfélaginu okkar sem sinna mikilvægri þjónustu fyrir land og þjóð?