154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil biðja þingmenn afsökunar, það er svolítið erfitt þegar maður er truflaður og á að rjúka á annan fund og maður rýkur bara á fundinn án þess að klára andsvör. Því miður skeður alltaf eitthvað nýtt, þetta er í fyrsta skipti sem ég gleymi því og bara rýk í burtu, en ég er kominn aftur. Ég þakka hv. þingmanni hennar andsvar og er sammála því að gjöldin eigi auðvitað að standa undir þeim kostnaði og því eftirliti sem er og eigi að endurspegla það nákvæmlega og fara í það. Hún nefndi fiskiðnaðinn og ýmiss konar eftirlit með þeirri starfsemi og við getum líka tekið Vegagerðina, eins og ég hef gert í þessari umræðu, og gjöldin sem eiga að renna þangað. Þau eru eyrnamerkt vegagerð og skila sér inn í ríkissjóð en síðan er bara skammtað úr hnefa í vegakerfið og þar af leiðandi er vegakerfið fjársvelt og gjörsamlega úr sér gengið. Þetta sýnir bara hversu nauðsynlegt það er, bæði að þessi gjöld endurspegli það sem þau eiga að dekka og renni þangað og skili sér. Ef við tökum vegakerfið sem dæmi er ég alveg sannfærður um það að ef þessi gjöld hefðu endurspeglað og skilað sér þangað þá værum við með margfalt betra vegakerfi í dag en við erum með. Við ættum að geta verið með mun betra vegakerfi. Ég er t.d. nýkominn frá Færeyjum, af Norðurlandaráðsþingi þar, og þegar maður sér vegakerfið hjá þessari grannþjóð okkar, hversu öflugt þeir hafa gengið í bæði jarðgangagerð og í að tryggja sitt vegakerfi, þá er bara himinn og haf á milli þess og þess sem við erum að gera. Við ættum að taka þá til fyrirmyndar. Kannski eru þeir líka til fyrirmyndar að því leyti til að gjöld sem þeir leggja á renna þangað sem þau eiga að fara.