154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:52]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég tek undir með honum. Mér finnst það ákveðið hugmyndafræðilegt mál líka vegna þess að oft heyrist, sérstaklega frá Sjálfstæðisflokknum en stjórnarliðum almennt, að hitt og þetta sem er ríkisrekið eigi að vera sjálfbært, eins og þau orða það, þ.e. að það eigi að reka sig sjálft. Þetta er t.d. mikið notað þegar við erum að tala um stúdenta, námslánakerfið okkar á að vera sjálfbært. Í raun eigum við að vera með einhvers konar lánastofnun fyrir stúdenta sem á að geta rekið sig sjálf, eins og við lítum ekki á nám sem gæði í sjálfu sér sem samfélaginu ber að styrkja. Þar myndi ég t.d. segja að það sé ekkert rökrétt að tala um að lánasjóðurinn, að stuðningur við námsmenn, eigi að vera sjálfbær. Þarna erum við að tala um að það ætti að vera ríkisstuðningur vegna þess að nám felur í sér sjálfstæð gæði í sjálfu sér og réttindi og eitthvað sem er verðmætt fyrir samfélagið í heild og alla einstaklingana innan þess. En svo þegar kemur að risagróðaiðnaði, eins og öllu því sem Samkeppniseftirlitið á að hafa eftirlit með, samrunanum þar, eða fiskveiðiauðlindinni sem auðvitað bakar alveg gríðarlega peninga, þar er ríkið að borga með umgjörðinni. Þar er ríkið að borga með því að einstaklingar geti verið hér að veiða eða geti verið hér að stunda viðskipti o.s.frv. Þetta er auðvitað mjög skrýtin hugmyndafræði, að líta svo á að stúdentar verði bara að sjá um sig sjálfir og borga vexti og sætta sig við að þeirra stofnun sem á að styðja þá til náms þurfi að vera sjálfbær, en að það sama eigi ekki við þegar við erum að tala um stofnanir ríkisins sem sinna eftirliti og utanumhaldi á stórum atvinnugreinum sem sannarlega moka inn peningum á grundvelli innviða samfélagsins.