breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að setja þessa umræðu í dálítið skemmtilegt samhengi að nokkru leyti. Í fyrsta lagi þá held ég að við höfum allt of fá rætt þessi mál í tengslum við loftslagsmál í þessari umræðu, takk fyrir það. Ég held að ástæðan fyrir því að orkumál hafi kannski rutt loftslagsmálum dálítið út í umræðunni hér þetta kjörtímabil sé hugmyndaleysi ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisflokknum voru afhentir lyklarnir að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og þar á bæ kann enginn loftslagsmál þannig að þau bara dustuðu rykið af gömlu góðu stóriðjustefnunni sinni, tóku virkjanakaflann úr henni og kölluðu hann orkuskipti og sögðu: Eru þetta ekki loftslagsmál? Það er það nefnilega ekki. Það sést á öllum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Beinar aðgerðir í loftslagsmálum eru núna að dragast saman á líftíma fjármálaáætlunar sem verður hér til umræðu seinna í vikunni og ekkert er að gerast í orkuskiptum eða virkjunarmálum eða neinu sem snertir þann málaflokk vegna þess að þar hittir Sjálfstæðisflokkurinn fyrir mál þar sem stjórnarflokkana greinir fullkomlega á í öllum grundvallaratriðum.
Í öðru lagi nefndi hv. þingmaður líka að almenningur væri dálítið hugsi yfir orkumálum og það hefði endurspeglast í umræðum um t.d. forsetakosningarnar. Gæti það ekki verið vegna þess að allt of lengi var Íslendingum kennt að hér væri ofgnótt allra auðlinda? Okkur var kennt að hér væri ofgnótt heita vatnsins á suðvesturhorninu, en svo allt í einu þarf að fara að loka sundlaugum á veturna af því það er ekki til nóg heitt vatn. Vestfirðingar byggja upp fjarhitaveitur á þeim forsendum að það sé alltaf til ofgnótt orku þannig að skerðanleg orka sé þeim aðgengileg á spottprís, svo bara er hún uppseld allt í einu. (Forseti hringir.) Eiga fjarvarmaveiturnar að fara að kaupa forgangsorku á helmingi hærra verði og velta því yfir á íbúa Vestfjarða? Ég held að þetta séu ákveðin viðmiðaskipti sem við þurfum að koma okkur í gegnum núna og átta okkur á því (Forseti hringir.) að auðlindirnar, meira að segja í okkar auðlindaríka landi, eru takmarkaðar.