breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir gott andsvar og góðar vangaveltur hér um bæði loftslagsmálin og um þessa stöðu og kannski þessa umræðu sem ég reifaði í minni ræðu. Ég held að þetta sé alveg kórrétt hjá þingmanninum, að þetta sé í grunninn það sem kjarnar svolítið þessa ríkisstjórn fyrst og fremst. Það væri ágætt ef það þokaðist þá eitthvað áfram í orkumálunum, til að mynda á Vestfjörðum, það væri loksins kominn einhver grunnpunktur þar sem ákveðið jafnræði væri á milli landshluta vegna þess að meira að segja á sumum stöðum á Vestfjörðum er ekki einu sinni komið þriggja fasa rafmagn. Það er staðan. Við erum enn þá þar stödd á mjög mörgum svæðum hér á landi að það er takmörkuð geta til að byggja upp atvinnustarfsemi vegna þess að það er skortur á þessum grunnpunkti.
Að því sögðu þá held ég að loftslagsmálin og metnaðarfull áform til lengri tíma séu eitthvað sem við Íslendingar, og ég tala mikið um þetta og er kannski með hálfgerða þráhyggju fyrir þessu — mér finnst við almennt hér á Íslandi svo föst í skammtímalausnum. Við getum græjað þetta á morgun eða hinn. Okkur skortir ofboðslega mikið þolgæði og getu til að hugsa til lengri tíma. Ég held að loftslagsmálin strandi líka pínu á því í pólitíkinni. Þegar þú setur einhver markmið til 10–15 ára þá sérðu ekki ábatann á þessu kjörtímabili. En ef þú nærð að virkja á einum stað geturðu sagt: Heyrðu, sjáið hvað ég gerði. Ég held að það sé líka punktur sem er umhugsunarverður í þessu samhengi.