breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég verð að þakka hv. þingmanni fyrir að nefna eitt af mínum uppáhaldsmálum, þriggja fasa rafmagn. Það er tæknilegt úrlausnarefni sem snýst bara um jöfn búsetugæði um landið. Þegar ég byrjaði hér á þingi 2016 voru áætlanir um að ljúka því að rafvæða sveitir landsins þannig að það átti að klárast 2030. Það átti að taka 15 ár að koma Vestfjörðum og Austurlandi á sama stað og restinni af landinu. Vestfirðir eru náttúrlega kapítuli út af fyrir sig en Austurlandið er í túnfæti Kárahnjúkavirkjunar, stærsta orkuvers Íslandssögunnar, og þar býr fólk ekki við tryggt rafmagn. Ég held að það sé hárrétt, sem hv. þingmaður segir, að ábatinn af stórum verkefnum skilar sér ekki sjálfkrafa í því að sá sem setur verkefnin af stað geti klippt á borða og fengið af sér mynd. Vandinn er líka að þetta eru flókin verkefni sem kalla á samvinnu margra ólíkra þátta. Nú er t.d. jarðhitaleit vestur á fjörðum loksins farin að bera árangur, verkefni sem ríkið þurfti auðvitað að stíga inn í með fjármuni, en það eru sveitarfélögin á svæðinu sem keyra þetta áfram. Hvar lendir ábatinn? Hingað og þangað. En það þarf einhvern veginn að finnast samhljómur á milli þeirra sem eru með peningana, sem er yfirleitt ríkið, og þeirra sem eru með íbúana til að koma þessu í framkvæmd. Svo held ég að við þurfum á næstunni, frekar en að vera alltaf að rífast um orkuskort í tengslum við fjarvarmaveiturnar fyrir vestan, að horfast í augu við það að skerðanleg raforka er ekki vara sem er ekki lengur í boði á okkar markaði. Öll orka verður forgangsorka á því háa verði sem því fylgir. Þá þurfa ríkið og Orkubú Vestfjarða að setjast niður og finna út úr því hvernig það verði framkvæmt án þess að það komi niður á efnahag íbúanna á Vestfjörðum, hvernig sé hægt að halda hita á húsum vestur á fjörðum á forgangsorku án þess að fólk fari á hausinn.