154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[17:30]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir þessar einföldu spurningar sem þó kalla kannski á flókið svar. Það er nú þannig að stór hluti ræðu minnar fjallaði einmitt um það að mér hefur fundist vera ákveðin upplýsingaóreiða um þessa þætti. Ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði, þegar kemur að því að meta hvort hér sé raunverulegur skortur; hvort það sé einhvers konar áróður sem við eigum að trúa eða hvort það sé staðan. En ég veit hins vegar að auðlindirnar okkar eru takmörkuð gæði og við þurfum að fara vel með auðlindirnar okkar. Eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi áðan þá hefur þessi skyndilega umræða um skort kannski komið fólki pínulítið í opna skjöldu og skyndileg umræða um möguleikann á því að hér sé svo komið að við þurfum að fara að hugsa um það að hafa ekki kveikt á ljósunum heima hjá okkur í öllum herbergjum eða að láta vatnið renna of lengi. Mitt ópólitíska — nei, ég ætla ekki að segja ópólitíska svar. Mitt stutta svar er: Já, ég hef áhyggjur af því að það sé yfirvofandi skortur. Ég hef áhyggjur af því að við megum ekki sóa auðlindunum okkar. Við þurfum að fara vel með þessar auðlindir og taka þeim ekki sem of sjálfsögðum. Ég held að það skipti máli almennt með allt sem við eigum hér á okkar góða landi, að fara vel með okkar góða land og láta kannski vatnið ekki renna of lengi eða passa aðeins upp á rafmagnið, ég held að það sé bara ágætisregla.