154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[17:51]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir góða ræðu. Hann kom sjónarmiðum á framfæri sem hafa kannski ekki verið reifuð nægilega vel hér í pontu hingað til. Við sem hér höfum talað höfum nálgast þessa umræðu, um frumvarpið sem við erum að fjalla um, frá öðrum sjónarhóli. En hv. þingmaður kemur inn á rekstrarörðugleika stofnana og vanfjármögnun og þá sérstaklega eftirlitsstofnana. Ég ætla fyrst og fremst að taka undir með hv. þingmanni hvað varðar vanfjármögnun Orkustofnunar. Þetta er eitthvað sem ég hef tekið eftir síðustu tvö ár, frá því að ég tók fyrst sæti á þingi en það eru um það bil tvö og hálft ár síðan. En það virðist vera sem svo að þessi ríkisstjórn hafi verið að fjársvelta eftirlitsstofnanir meira og meira með hverju ári. Líkt og hv. þingmaður kom inn á þá á að sameina stofnanir. Það stendur í stjórnarsáttmála að það eigi að sameina Samkeppniseftirlitið og Neytendastofu, sem er náttúrlega bara galin hugmynd.

Það liggur alveg skýrt fyrir að eftirlitsstofnanir eru vanfjármagnaðar. Til þess að þessar stofnanir geti sinnt verkefnum sem koma á þeirra borð þurfa þær að forgangsraða ákveðnum verkefnum fram yfir önnur verkefni sem leiðir til þess að þær ná ekki að afgreiða tiltekin mál sem heyra samt sem áður undir verkstjórn þeirra. Því var ég að velta fyrir mér: Túlkar hv. þingmaður það sem svo, þegar stofnanir þurfa að (Forseti hringir.) forgangsraða verkefnum vegna vanfjármögnunar, að þessi fjársveltistefna ríkisstjórnarinnar leiði til þess að eftirlitsstofnanir geti ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu?