breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel alveg klárt mál að með þessu frumvarpi muni forgangsröðunin verða skýr innan Orkustofnunar. Hvatinn verður, og stjórnendur stofnananna munu sjá til þess, að þeim störfum verði eingöngu sinnt þar sem stofnunin getur aflað tekna, kannski ekki alveg eingöngu, ekki 100%, en það verður áhersla á að starfsmennirnir geti skrifað tíma á störf sín og að það verði útseld vinna. Þannig verður hægt að fjármagna stofnunina. Ég er ekki með lögin um Orkustofnun fyrir framan mig, sem varða Orkustofnun. Það er klárt mál að þar eru lagalegar skyldur sem eru fram yfir það sem hér er talað um, þ.e. að stofnunin geti aflað tekna. Það verður mjög fróðlegt að sjá það. Ég er alveg sannfærður um að önnur lagaskylda stofnunarinnar — að þau verkefni muni sæta afgangi. Það er það sem er verið að leggja upp með. Það tel ég ekki vera gott. Ég held að umsvif verkefna og þróun í stjórnsýslu málaflokksins hafi leitt til þess að orkustefnu skortir fullnægjandi fjármögnun þessara verkefna til að geta sinnt þeim nægilega vel, og bregðast við með þessum hætti.
Ég sé það í fjárlaganefnd ár eftir ár, að það er aðhaldskrafa. Ég er alveg sannfærður um að það hafi verið aðhaldskrafa upp á nokkur prósent á Orkustofnun, á stofnun sem er þegar vanfjármögnuð. Þetta er verið að gera aftur og aftur á stofnanir ár eftir ár. Og hvar endar þetta? Þetta endar náttúrlega á því að stofnanirnar geta ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Það er það sem er aðalatriðið í þessu. Svo á að leysa þetta allt með sameiningum. Og svo var verið að býsnast yfir því í fréttum að það væri einhver sameining — ég man ekki nákvæmlega hvaða sameining það var — en það fækkaði ekki starfsmönnum. Það er vegna þess að þessar stofnanir eru keyrðar algerlega á horriminni og það er verið að kreista allt út úr starfsmönnunum sem hægt er. Og það er ekki hægt að fækka starfsmönnum þó að það séu sameiningar.