breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir svarið og fyrir að fylgja málum aðeins eftir hvað varðar stofnanasameiningar, sem ég kom reyndar inn á í seinni ræðu minni í þessu máli. Ef við byrjum aðeins á byrjuninni, bara á grunni þessa máls, þá er verið að breyta lögum varðandi þjónustugjöld Orkustofnunar, m.a. til að Orkustofnun geti sinnt leyfisveitingum með skilvirkari hætti og forgangsraðað verkefnum. Það má deila um þetta en þetta er bara flott. Líkt og hv. þingmaður kom inn á er nú þegar rosalega mikið álag á starfsmönnum hins opinbera og það er verið að kreista allt sem hægt er út úr þeim, það vinnuframlag sem þau hafa upp á að bjóða. Maður finnur til með fólki. Það er okkar hlutverk hér, löggjafans, að sjá til þess að slíkar stofnanir, sem gegna grundvallarhlutverki í að halda samfélagi okkar gangandi, fái viðunandi fjármagn.
En svona til að koma inn á spurningu mína til hv. þingmanns, af því að hann kemur inn á stofnanasameiningar, að það eigi að sameina þessar stofnanir, þá liggur fyrir að Orkustofnun verður ekki Orkustofnun lengur heldur Loftslags- og orkustofnun — ég man ekki alveg hvernig það er. En það er verið að sameina nokkrar stofnanir sem eiga að sinna ýmsum leyfisveitingum sem snerta m.a. orkumál sem hafa hlotið rosalega mikla umræðu hér á þessu þingi. Ég velti því bara fyrir mér, þar sem hv. þingmaður er líka í fjárlaganefnd, hvort slík stofnanasameining sé til þess fallin að auka skilvirkni þessa málaflokks, hvort hv. þingmaður sjái fram á það með þessum þjónustugjöldum og stofnanasameiningum. Sér hv. þingmaður fram á það að þessum stofnanasameiningum fylgi fjármagn til þess að gera starfið raunverulega skilvirkara?