154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[17:58]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Lenyu Rún Taha Karim fyrir seinna andsvarið. Ég tel að mikið af þessum sameiningum skili ekki tilætluðum árangri. Af hverju ekki? Það er af því að hlutverk stofnananna er mismunandi. Þú getur ekki sameinað bakarí og bílaverkstæði, það er verið að gera sitthvorn hlutinn. Ef þú sameinar þau halda menn áfram að gera við bílinn og baka kökur, það eru ekki samlegðaráhrif þar.

Í 2. gr. laga um Orkustofnun segir, um hlutverk stofnunarinnar:

„1. að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um orkumál og önnur auðlindamál […],

2. að standa fyrir rannsóknum á orkubúskap þjóðarinnar, á orkulindum landsins og hafsbotnsins og á öðrum jarðrænum auðlindum þannig að unnt sé að meta þær og veita stjórnvöldum ráðgjöf […],

3. að safna gögnum um orkulindir og aðrar jarðrænar auðlindir, nýtingu þeirra og orkubúskap landsmanna, varðveita þau og miðla upplýsingum til stjórnvalda og almennings,

4. að vinna að áætlanagerð til langs tíma um orkubúskap þjóðarinnar og hagnýtingu orkulinda […],

5. að stuðla að samvinnu þeirra sem sinna orkurannsóknum og samræmingu á rannsóknarverkefnum,

6. að fylgjast í umboði ráðherra með framkvæmd opinberra leyfa […],

7. að annast umsýslu Orkusjóðs.“

Það er eitt atriði sem lýtur að leyfisveitingum, það er í 7. liðnum sem ég las hér upp. Það er eini liðurinn sem snertir það að geta selt út vinnu samkvæmt þessu frumvarpi.

Ég er alveg sannfærður um að hin atriðin, sex af sjö, munu sæta afgangi. Það verður ekki lögð áhersla á þau vegna þess að það er ekki tekjumyndandi fyrir stofnunina. Þetta er vanfjármögnuð stofnun og starfsmenn reyna að bjarga sér og hafa lífsviðurværi af starfi hjá Orkustofnun með því að selja út vinnu sína. Það sjáum við aftur og aftur hjá stofnunum sem hafa gert þetta, t.d. um innkaup ríkisins o.s.frv. Út á það gengur þetta og það er það sem er svo hættulegt í þessu. Þá þurfum við í sjálfu sér að endurskoða hlutverk Orkustofnunar í leiðinni, ef við ætlum að treysta á tímaskráningu til tekjuöflunar.