154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:01]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Mér finnst það áhugaverður vinkill sem hann kemur með inn í þessa umræðu, að það sé í raun ekki endilega til bóta fyrir Orkustofnun að fá þessar gjaldtökuheimildir fyrir veitta þjónustu af því að flestum vinnustundum starfsmanna stofnunarinnar verði þá fleytt þangað sem tekjurnar koma. Ég ætla að leyfa mér að setja spurningarmerki við þetta þar sem um er að ræða hluta af hinum lögbundnu verkefnum stofnunarinnar og hún stjórnar því ekki mikið hver þau eru. Eins og ég les þetta þá eru þetta leyfisveitingar. Það þarf einhver að sækja um þessi leyfi til að þessi þjónustuþörf myndist sem þarf svo að greiða fyrir. Mér finnst þetta svolítið sambærilegt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans sem getur rukkað þá aðila sem eiga að sæta eftirliti fyrir það eftirlit sem þeir sinna. Þetta hefur orðið til þess að rekstrargrundvöllur Fjármálaeftirlitsins er ansi sterkur. Ef við berum það síðan saman við Samkeppniseftirlitið, sem getur ekki rukkað í samræmi við tímann og vinnustundirnar sem fara í mat á lögmæti samruna, sem er eitthvað sem þeim ber lögbundin skylda til að gera — í hvert skipti sem fyrirtæki vilja fara í samruna verður Samkeppniseftirlitið að fara yfir það hvort það hafi ólögmæt áhrif á samkeppni á Íslandi og þarf í raun að leggja allt annað til hliðar á meðan og getur ekki verið að sinna öllum hinum hlutverkunum sínum af því að það fara svo margar vinnustundir takmarkaðs starfsmannafjölda í það lögbundna hlutverk að fara yfir þessa samruna.

Þá velti ég því upp með hv. þingmanni: Hér eru atriði sem er verið að leyfa Orkustofnun að rukka fyrir, sem þau verða alltaf að gera. Þau verða alltaf að inna þessi verk af hendi ef einhver vill sækja um leyfi, ef einhver vill fá virkjunarleyfi, ef einhver vill fá rannsóknarleyfi o.s.frv. Það er einfaldlega verið að rukka fyrir þjónustu sem fólk biður um þegar það kemur til stofnunarinnar. Ég vil því spyrja: Er þetta endilega svo vondur hvati?