154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:05]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get tekið heils hugar undir með hv. þingmanni að ég tel ekki að sektir sem stofnanir setja á einstaklinga eða fyrirtæki eigi síðan að renna til stofnunarinnar, ég er alls ekki á þeirri skoðun. (EÁ: Nei, nei, nei …) Ég er sammála því að það eru rangir hvatar þar. Hins vegar varðandi Samkeppniseftirlitið þá erum við að tala um ákveðið lögbundið hlutverk sem Samkeppniseftirlitið hefur og það er að í hvert sinn sem fyrirtæki á markaði sem ná ákveðinni stærð ætla að fara í einhvern samruna þá verður samkvæmt Samkeppniseftirliti, lögum samkvæmt, að fara yfir hvaða áhrif það mun hafa á samkeppnislandslagið á Íslandi. Þetta er mjög tímafrek vinna sem er ákveðin þjónusta við fyrirtæki sem um ræðir og sem vilja fara í þennan samruna. Eins og staðan er núna er mjög ódýrt fyrir fyrirtæki, meira að segja risavaxin fyrirtæki, að fá þessa þjónustu eða þetta vottorð, heilbrigðisvottorð, frá Samkeppniseftirlitinu eða þá ekki eftir atvikum. Þar er einmitt bara leyfisgjald. Það er ákveðið leyfisgjald fyrir samruna og það er ekki í neinu samræmi við tímann og vinnuna sem fer í þetta.

Það sem Samkeppniseftirlitið hefur kvartað yfir í þessu samhengi er að þau verða að eyða öllum þessum vinnustundum í að fara yfir þetta því að þetta er svo skýr og lögbundin skylda sem stofnunin hefur sem virkjast um leið og fyrirtæki ákveða að gera þetta. Þá þurfa þau að setja öll sín lögbundnu verkefni til hliðar að öðru leyti, eins og t.d. að meta samkeppnisumhverfið á Íslandi, athuga hvort það sé einhver að ná sér í allt of ráðandi stöðu einhvers staðar, fara í frumkvæðisathuganir, gera fullt af hlutum eins og að finna út úr samráði Eimskipa og Samskipa sem þau gerðu svo eftirminnilega um daginn. Þau hafa miklu minni tíma í þetta af því að það fer svo ótrúlega mikill mannafli í þetta sem virkjast aftur og aftur og er ákveðin þjónusta við fyrirtækin. Þannig að mér finnst a.m.k. að þegar kemur að svona hlutum, sem eru að sækja um leyfi, afla gagna, taka við þeim, þá þurfi að vera (Forseti hringir.) eitthvert gjald sem er tekið fyrir það sem er í samræmi við tímann og orkuna sem fer í þetta. Kannski er gjaldskrá ekki endilega réttasta lausnin, en er hún ekki a.m.k. aðeins í áttina?