154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:08]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Varðandi Samkeppniseftirlitið þá hef ég ekki skoðað það sérstaklega en við samruna fyrirtækja þarf að leita samþykkis Samkeppniseftirlitsins og þá tel ég eðlilegt að fjárhæð gjaldsins miðist ekki við vinnuframlag eða tímastundir sem skrifaðar eru hjá stofnuninni heldur ætti að miða það við veltu fyrirtækjanna og stærð fyrirtækjanna og mögulegt umfang sem væri fyrir fram ákveðið af Samkeppniseftirlitinu. Þannig myndi stofnunin ákveða hvert gjaldið yrði við þennan samruna. Það er nákvæmlega það sama með leyfisgjöldin. Ég tel að leyfisgjöldin ætti að ákveða fyrir fram og segja: Leyfi til svona stórvirkjunar og eftirlit með svona raforkuveri á að vera þetta. Ekki vera að reikna það út og færa rök fyrir því nákvæmlega hver kostnaður stofnunarinnar er heldur á að fjármagna þennan kostnað úr ríkissjóði. Það er það sem er aðalatriðið. Eðli stofnunarinnar á ekki að fara að snúast um það hversu marga „billing hours“ eða hversu margar klukkustundir það getur skráð í þessu verkefninu eða hinu verkefninu o.s.frv. Það breytir eðli starfseminnar inni á stofnuninni og það er það sem ég er að setja út á.

Það má alveg hafa hófleg leyfisgjöld að vissu leyti, eins og ég segi, bæði hjá Samkeppnisstofnun og líka varðandi Orkustofnun, en það á að gera það fyrir fram: Þetta er gjaldið fyrir þetta leyfi. En fyrst og fremst á að fjármagna þessa stofnun. Ég taldi það upp sem er í 2. gr. laga um Orkustofnun og hvert hennar lögbundna hlutverk er og það var lítið af því, einn liður, sem væri mögulega hægt að hafa tímaskráningu á. Ég tel að þetta geti breytt öllum hvatakerfum innan stofnunarinnar. Ég meina, til hvers erum við með fjárlög til að fjármagna þessar stofnanir? (Forseti hringir.) Það er grundvallarspurningin sem við eigum að spyrja okkur að. Við erum með þau til að fjármagna stjórnsýsluna m.a. og það er einn ódýrasti hluti fjárlaga, minnsti hluti fjárlaga.