breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Já, við höldum hér áfram að ræða um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar. Þetta eru þjónustugjöldin sem hér um ræðir, lagafrumvarp frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Mig langar að segja hér, áður en ég fer kannski í efni máls, að það er auðvitað mjög þakkarvert hve mikil umræða hefur verið um orkumálin í þessum sal að undanförnu, bæði í þessu máli og svo í tengslum við annað mál líka sem við vorum með hér fyrr og erum reyndar ekki búin að klára í umræðu en náum vonandi að fara betur yfir á þeim tíma sem eftir er af þinginu þessa önnina.
Almennt séð litast auðvitað öll umræða um orkumál af því að menn greinir á um það hvort hér sé einhver raunverulegur orkuskortur eða ekki. Menn greinir á um það hvort það sé næg orka til í þau orkuskipti sem fyrirhuguð eru, sem eru auðvitað bara stór partur af okkar loftslagsáformum. Inni í þessu og allt um kring og alltumlykjandi er síðan sú staðreynd að við erum með ríkisstjórn sem kemur sér ekki saman um nokkurn skapaðan hlut og ef þau eru einhvers staðar ósammála þá er það í þessum tiltekna málaflokki, myndi ég nú halda, en það er kannski hægt að eiga sömu yfirlýsingu um marga aðra málaflokka líka. Þá auðvitað erum við með þá stöðu að samsetning þessarar ríkisstjórnar — eins ágætt og fólkið allt nú er sem situr í þessari ríkisstjórn, og þingmenn stjórnarflokkanna eru bara bundnir af því að það er ekki endalaust hægt að semja sig að lægsta samnefnara. Það erum við auðvitað að sjá hér í hverju málinu á fætur öðru og það er auðvitað eitthvað sem hangir yfir öllu þegar við ræðum um orkumálin í víðu samhengi.
Talsvert hefur verið komið inn á rammaáætlun og það fyrirkomulag sem við erum með í henni og síðan leyfisveitingar í framhaldinu. Það sem minn flokkur hefur stundum verið að benda á er tíminn frá því að virkjunarkostur fer í nýtingarflokk og þar til það getur komið orka úr þeim kosti, það er kannski stundum svolítið svifaseint ferli. Síðan erum við auðvitað í þeirri stöðu að það verða auðvitað mjög miklar deilur um orkumálin hér á Íslandi vegna þess að náttúruverndin og náttúrusjónarmiðin öll koma inn í það. Það er í raun og veru svo auðvelt að hafa samúð með öllum þeim sem taka til máls í þeirri umræðu því að allt er þetta jú sprottið af bæði væntumþykju fyrir landinu okkar og auðvitað líka einhverjum hagsmunum sem mönnum finnst felast í því að beisla orku til að efla lífskjör í landinu.
Í greinargerðinni kemur fram að í þessu máli er verið að mæla fyrir um heimildir til töku þjónustugjalda vegna vinnu Orkustofnunar við afgreiðslu leyfisumsókna vegna auðlindanýtingar, afgreiðslu leyfa og eftirlits með þeim og Orkustofnun er falið eftirlits- og leyfisveitingarhlutverk í ýmsum lögum sem varða nýtingu auðlinda. Það kemur líka fram að á þeim tíma sem liðið hefur frá yfirfærslu leyfisveitinga frá ráðherra til Orkustofnunar hefur lagaumhverfið ekki breyst að þessu leyti. Á sama tíma hafa umsvif verkefna og þróun í stjórnsýslu málaflokksins leitt til þess að Orkustofnun skortir fullnægjandi fjármögnun þessara verkefna til að geta sinnt þeim nægjanlega vel. Ráðuneytið telur brýnt að framangreind lög feli í sér lagastoð fyrir heimild Orkustofnunar til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim.
Það er auðvitað þannig með þetta þingmál eins og önnur að það fer sína hefðbundnu leið í kerfinu, inn í samráð og það komu umsagnir á meðan málið var í samráðsgátt og það er gerð grein fyrir þeim í greinargerð með málinu sem við ræðum hér. Þar er t.d. verið að tiltaka að í umsögnum Samtaka iðnaðarins segi að samtökin leggist ekki gegn því að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á lögum til að tryggja að opinberar stofnanir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu, sem er auðvitað bara mjög skynsamleg afstaða, og samtökin eru að velta því upp hvort aukið hagræði og skilvirkni kunni að felast í mótun boðaðrar gjaldskrár samhliða vinnu við sameiningu Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar sem nú stendur yfir. Þarna erum við þá auðvitað komin inn í þau sameiningaráform sem eru á þessu málefnasviði og hafa verið boðuð og talsvert rætt um. Í því samhengi langar mig kannski að hrósa þessum tiltekna ráðherra fyrir að hafa þó a.m.k. reynt að hefja einhverja umræðu og jafnvel einhverjar virkar aðgerðir til að skoða möguleikann á því að sameina stofnanir til að einfalda kerfið okkar, sem ég held að sé okkur öllum í hag, án þess þó auðvitað að draga úr þeim þunga sem á að felast í hlutverki þeirra stofnana sem undir eru.
Samtök iðnaðarins eru einnig að segja að þau telji mikilvægt að gæta, í vinnu við gjaldskrá og þar af leiðandi innheimtu þjónustugjalda, að ábendingum eftirlits- og úrskurðaraðila, svo sem umboðsmanns Alþingis og úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, um slíka gjaldheimtu.
Síðan er líka verið að gera grein fyrir því að í umsögn Samorku í samráðsgáttinni segir að horfa þurfi til fyrirhugaðrar sameiningar stofnana. Þar komum aftur að þessum punkti sem ég var að nefna hér áðan. Það er tekið fram að mikilvægt sé að þjónustugjöldum sé stillt í hóf og skýrt afmarkað í lögum til hvaða verkefna þeim sé ætlað að renna. Þjónustugjöldum stillt í hóf — það getur auðvitað verið frekar afstætt hvað er að stilla í hóf en almenna stefnan okkar í Viðreisn er sú að það á að vera eitthvert samhengi á milli þeirrar starfsemi sem verið er að sækja um leyfi fyrir og þess hvað kostar að vera með þá starfsemi, til að mynda út frá áhrifum á umhverfi og náttúru. Í umsögn Samorku þarna segir að þar sem Orkustofnun hafi þegar heimild til að innheimta gjöld til að standa undir kostnaði við raforkueftirlit stofnunarinnar sé mikilvægt að fullnægjandi fjárhagslegur aðskilnaður sé á milli ólíkra verkefna þannig að skýrt sé í framkvæmd hvaða kostnaði viðkomandi þjónustugjald mæti. Þá þurfum við að huga að því hvernig eftirliti með innheimtu gjalda verði háttað, birtingu og kynningu á þjónustugjöldum, viðbrögðum við ábendingum og kvörtunum og ferli við endurskoðun gjaldskrár. Síðan segir að að mati Samorku þurfi að framkvæma reglulega úttekt á því hvernig gjöld hafi verið innheimt og hvort markmiðum um bætta þjónustu við umsækjendur hafi verið náð. Þetta er auðvitað svona almenn ábending, getum við sagt, sem full ástæða er til að taka undir. Það er ekkert athugavert við það, og bara gott mál að átta sig á því, hver áhrifin af tiltekinni gjaldtöku verði og hvort markmiðin sem eru að baki þeirri gjaldtöku hafi síðan skilað sér eins og til var ætlast. Síðan fer málið inn í þingið og er rætt hér og fer síðan inn í nefnd, ég á reyndar ekki sæti í þeirri nefnd, sem kallaði eftir sjónarmiðum og umsögnum og gestir koma og nefndin leggur mat á það sem kemur þá utan úr samfélaginu eins og þetta ferli okkar gerir ráð fyrir og þá kemur umsögn frá Samorku um að ákvæði frumvarpsins séu of almennt orðuð og vísað er til umfjöllunar í ársskýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2019 þar sem er að finna umfjöllun um þjónustugjöld. Betur færi á því að útfæra nákvæmar gjaldaheimildir í einstökum lögum líkt og nú sé að finna t.d. í 33. gr. raforkulaga og engar athugasemdir séu gerðar við að slíkar gjaldtökuheimildir í lögum væru uppfærðar reglulega með tilliti til verðlagsþróunar. Þetta er sem sagt eitt af því sem kemur frá Samorku þarna í samráðsferli nefndarinnar.
Í umsögn Orkuveitu Reykjavíkur er bent á mikilvægi þess að eftirlitsskyldir aðilar hafi aðkomu að gerð gjaldskrár og kostnaður fyrir umsækjendur verði fyrirsjáanlegur, sem er auðvitað sjálfsagt að hafa í huga í svona vinnu. Áætlanir þurfi að liggja fyrir um umfang kostnaðar sem og afgreiðslutíma.
Það kemur líka fram í umsögn Samtaka atvinnulífsins sú árétting að álagning þjónustugjalda verði að byggjast á viðhlítandi lagaheimild og aðeins svara til hinnar veittu þjónustu. Gæta verði þess að bein tengsl standi á milli skyldu til að greiða þjónustugjald og fjárhæðar þess annars vegar og hins vegar þeirrar þjónustu sem viðkomandi stofnun veitir hverjum gjaldanda. Þá þurfi gjaldtaka að vera í senn fyrirsjáanleg og gagnsæ og byggjast á traustum útreikningum — svona almenn varnaðarorð og ábendingar sem gagnlegt er að fá inn í þetta ferli allt.
Síðan kemur umsögn frá Landsvirkjun þar sem verið er að ítreka mikilvægi þess að fyrirhuguð gjaldtaka tryggi nauðsynlegt fjármagn Orkustofnunar og skili sér í aukinni skilvirkni og hraðari afgreiðslu mála. Og hér er auðvitað verið að benda á svona meginpunktinn, finnst mér, sem við þurfum að hafa í huga í þessum málum, aukna skilvirkni og hraðari afgreiðslu mála. Mig langar hins vegar ekkert að gefa allt laust í því án þess að menn séu með það innbyggða eftirlit sem á að fylgja í þessu. Við erum auðvitað ekki að biðja um skilvirkni bara eitthvað út í bláinn eða hraðari afgreiðslu eitthvað út í bláinn, við erum að gera þetta til að reyna að flýta fyrir kostum. En við verðum auðvitað áfram að leggja áherslu á að ekki sé verið að gefa afslátt af gæðum, ef við getum orðað það þannig. Það kemur líka fram í umsögn Landsvirkjunar að þar sé helst kannski að nefna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar ásamt útgáfu leyfa, svo sem virkjunarleyfa, og eftirlit með þeim og Landsvirkjun telur nauðsynlegt að upphæð gjalds taki mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og byggist á rökstuddri rekstraráætlun.
Síðan hefur auðvitað umræðan hér í þingsal farið út um víðan völl eins og alltaf er þegar við ræðum orkumálin og mig langar kannski svona aðeins áður en ég geri grein fyrir því hvernig minn flokkur lítur á þessi mál, af því að það var hreyft við því hér í ræðu fyrr í umræðunni, af því að hér er auðvitað verið að benda á þetta allt saman líka í ákveðnu samhengi við fyrirhuguð áform um sameiningu stofnana á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að á sama tíma og er verið að tala um það þá erum við auðvitað með þá staðreynd að þegar þessi ríkisstjórn hóf sitt annað kjörtímabil þá var verið að bregðast við breyttum valdahlutföllum innan ríkisstjórnarinnar með því að fjölga ráðuneytum. Ég átta mig alveg á því að menn geta sagt að eitt ráðuneyti til eða frá skipti ekki öllu máli í heildarsamhengi þegar við erum að tala um fjárhag og fjárreiður ríkisins, og það er auðvitað út af fyrir sig alveg rétt, en þarna er þó um umtalsverða peninga að ræða og það er auðvitað svolítið hægt að skoða þetta í því samhengi að á sama tíma og menn eru að tala fyrir því að sameina stofnanir þá sitja menn í ríkisstjórn sem gerði ekkert annað en að fjölga ráðherrum þegar farið var af stað. Auðvitað er ákveðin þversögn byggð inn í þetta sem við höfum mikið verið að benda á hér í umræðunni um hin ýmsu mál í mínum flokki, enda viljum við að vel sé farið með peninga almennings og það er eitthvað sem við þurfum að vera sérstaklega vakandi fyrir nú þegar við erum að berjast við verðbólguna og vextina, vegna þess að það að fara betur með fjárreiður almennings, að nýta hverja krónu betur, er auðvitað algjört lykilatriði, því við erum að reyna að draga úr umsvifum í hagkerfinu og Seðlabankinn hefur verið svolítið einn í því hlutverki vegna þess að ríkisvaldið hefur ekki stutt við eins og við þekkjum. Það er nú kannski mögulega vegna þess að ekki var vel af stað farið í upphafi með því að bregðast við kosningasigri bara með því einu að fjölga ráðherrum.
Við í mínum flokki höfum verið að tala um að við viljum virkja með skynsamlegum hætti. Þar á auðvitað að byggja á grunni grænnar atvinnu- og iðnaðarstefnu. Það þarf auðvitað að vera svolítið vel skilgreint og afmarkað hvað verið er að tala um og þá hefur farið fram almennilegt mat á því fyrir hverju er verið að virkja. Það þarf auðvitað að liggja fyrir bæði matið á virkjunarkostinum, áhrifum á umhverfi og annað en líka í hvað við ætlum að nota orkuna. Þannig eigum við auðvitað þetta samráð um samspil virkjana og náttúruverndar. Samhliða þessu, eins og við höfum mikið verið að tala um, þarf að tryggja betri nýtingu á þeirri orku sem nú þegar verður til og það eru auðvitað allir flokkar hér á Alþingi, heyrist mér, sammála um það, algjörlega óháð því hvar þeir staðsetja sig á litrófinu. Það er til að mynda hægt að gera með því að bæta núverandi flutningskerfi en það hefur verið svolítið þunglamalegt að ná að gera það eins og við þekkjum, bæði flutningskerfið og dreifikerfin og svo að flýta uppbyggingu raforkumarkaðar.
Það er mikið verið að tala um orkuskort í landinu. Það er mikil umframeftirspurn eftir orku hér á landi en við verðum að hafa það í huga að á sama tíma er Ísland það land sem framleiðir einna mesta raforku miðað við mannfjölda í heiminum. Við erum svo lánsöm hér á þessu landi að við eigum gnægð grænnar orku. Það er bara þannig og við erum komin lengra en mörg önnur ríki í orkuskiptum. Það er nú samt einhvern veginn þannig að þegar við ræðum um þetta þá færist umræðan kannski alltaf beint út á jaðrana. Við viljum kannski ekki beint staðsetja okkur þar. Við viljum virkja með skynsamlegum hætti þar sem það liggur þá líka fyrir í hvað við ætlum að nota orkuna, í hvað er verið að virkja, hvað er þess virði að virkja fyrir, og eiga síðan samráð um það hvar má virkja strax og hvaða svæði á að vernda. Þetta er samtal sem við í mínum flokki erum svo sannarlega ekki feimin við að taka á hverjum tíma. Við erum auðvitað að horfa á þetta tæki sem við eigum, þetta stjórntæki sem er rammaáætlun, og svo þurfum við samhliða því, eins og ég var að nefna, að vita nákvæmlega í hvað við ætlum að nota orkuna. Við ætlum að nota hana í græna uppbyggingu. Það er jú það sem við erum að tala um í þessu samhengi. Umhverfismálin eru alltumlykjandi í því þegar við erum að móta okkur stefnu í nánast öllum atvinnugreinum til lengri tíma litið. Við erum öll sammála um það í orði en svo getum við auðvitað verið svolítið á sitthvorum staðnum um það nákvæmlega hvað teljist grænt og hvað ekki, eins og við sjáum bara á umræðunni.
Það er eitt sem hefur kannski verið nefnt, og svo sem ekki bara hér af fólki í mínum flokki, að það er hægt að flýta orkukostum sem eru þegar í nýtingarflokki rammaáætlunar með því að veita þeim forgang í leyfisveitingum og einfalda allt ferli framkvæmda. Annað sem við höfum verið að tala um almennt, þegar kemur að auðlindanýtingu, er að ábatinn af þessu öllu sitji að einhverju leyti eftir í sveitarfélögunum, þ.e. í nærsamfélaginu þar sem verðmætin verða til. Það er ekki nema sanngjarnt vegna þess að oft er það þannig, sérstaklega þegar um stórar framkvæmdir er að ræða, að þá er mikið rask á tilteknum svæðum í ákveðnum sveitarfélögum þannig að þau eru þá þannig sett að þau verða að njóta ábatans af þessu með beinum hætti líka. Þetta er leiðarstef í öllu því sem við höfum verið að tala um, ekki bara í samhengi við orkumálin heldur í allri atvinnuuppbyggingu annarri, þannig að það er í mörg horn að líta þegar við erum að tala um þetta allt saman.
Við erum algerlega grjóthörð á því og erum ekki í hópi þeirra flokka, sem oft eru kannski hægra megin í tilverunni, sem hafa efasemdir um — og þá er ég ekki endilega að tala um Ísland heldur bara svona alþjóðlega — að það sé einhver ástæða til að vera að huga mikið að þessum loftslagsmálum, þetta séu einhver falsvísindi, það sé verið að ýkja allt fram úr hófi, áhrif mannsins á náttúruna geti ekki verið jafn mikil og verið er að tala um. Þetta er málflutningur sem við höfum hafnað mjög eindregið. Við viljum algerlega horfast í augu við það, og þetta er ekkert annað en heilbrigð skynsemi, að mannskepnan, eins umsvifamikil og hún er á jörðinni, getur ekki hagað sér nákvæmlega með þeim hætti sem hún vill án þess að það bitni á öllum gæðum jarðarinnar, á loftslagi jafnt sem öllu öðru, þannig að það er brýnt að ríki heims séu svolítið samstiga í því að ná einhverjum árangri og það gengur ekki nægjanlega vel eins og við sjáum á tölum víða. Þetta er umræða sem er hér í þessum sal í tengslum við annað hvert mál sem við fjöllum um og það er bara vel. Við getum ekki stungið höfðinu í sandinn hvað þetta varðar. Það þurfa öll ríki heims að leggja sitt af mörkum, líka lítil og fámenn ríki norður í Atlantshafi. Við getum ekki sagt að við séum svo lítil að það sem við gerum skipti ekki máli. Það er alger endaleysa að snúa málum á þann veg. Nú er ég kannski kominn aðeins út fyrir efni máls, svona að einhverju leyti, en þetta er það sem ég vildi hafa sagt um þetta mál í bili.