154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni sína ræðu. Það er af mörgu að taka enda kannski erfitt fyrir okkur að kjarna á tveimur mínútum andsvör við 20 mínútna ræðu þingmannsins. Mig langar hins vegar að nefna aðeins þennan þráð sem hann dró upp varðandi stefnuleysi ríkisstjórnarinnar og kannski stefnuleysi á annan hátt en við ræðum oft. Það að það vanti atvinnustefnu og það vanti innan hennar iðnaðarstefnu, það að þessar stefnur séu ekki til staðar verður til þess að við sem land getum ekki sett okkur einhverja eðlilega áætlun, eitthvert mat á orkuþörf samfélagsins. Þaðan sprettur auðvitað þessi furðulega umræða sem við eigum hér reglulega í þingsal um hvort það þurfi meiri orku eða ekki. Einu opinberu stefnuplöggin sem við eigum til að miða þá umræðu við eru — ja, það er nú varla einu sinni hægt að kalla þau stefnur. Við erum með eitthvað sem einhvern tímann var kallað grænbók en var nú einhvers konar samtíningur af hugmyndum orkufyrirtækjanna sem hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lét taka saman á fyrstu mánuðum þessa kjörtímabils. Þar var stillt upp einhverjum svakalegustu sviðsmyndum í orkuskiptum sem hugsast gætu. Það átti að reikna með stöðugum vexti í öllum geirum samfélagsins og því að við myndum nota rafeldsneyti á alla þungaflutninga og allt millilandaflug og millilandasiglingar þannig að það þyrfti að tvöfalda orkukerfið okkar. (Forseti hringir.) Þarf ekki að stíga skref aftur og fá hér raunverulega umræðu um grundvöllinn, um atvinnustefnu, (Forseti hringir.) til þess síðan að sé hægt að setja orkustefnu þar sem orkuþörfin er metin og þar sem er líka hægt að forgangsraða (Forseti hringir.) þannig að við séum ekki bara að gluða megavöttum inn í kerfið í þeirri von að þau skili einhverjum ábata í þágu loftslagsmála, (Forseti hringir.) þannig að það sé í raun og veru hægt að segja: (Forseti hringir.) Þetta skal þjóna loftslagsmarkmiðum?

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)