breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Ja, það sem hv. þingmaður er í raun og veru að spyrja um er hvort það þurfi ekki að vera heilbrigð skynsemi í því sem við erum að gera í bráð og lengd og það er í raun svolítið það sem er verið að tala um. Ég hef ekkert legið á þeirri skoðun minni að ég telji að við þurfum kannski frekar að gefa í en hitt. En við gerum það auðvitað ekki bara eitthvert út í bláinn. Við þurfum, eins og ég kom nú skýrt á framfæri í minni ræðu, auðvitað fyrst að skilgreina hvernig við ætlum að meta kosti en síðan í hvað við ætlum að nota orkuna sem úr kostunum kemur. Það er talsvert af því gert að móta stefnur í hinum og þessum atvinnugreinum, bara svo við tökum það sem dæmi, en ég hef lúmskan grun um það að í sumum tilfellum séu ekki endilega einhver loftslagssjónarmið eða þá varfærin nýting að baki þegar verið er að véla um. Við getum t.d. nefnt, og maður hefur ákveðnar áhyggjur af því, þegar talað er um að ákveðnar atvinnugreinar, ég skal bara nefna landbúnað, að önnur sjónarmið, eins og til að mynda — og ég geri ekki lítið úr — byggðasjónarmið, geti þá mögulega orðið til þess að menn gefi afslátt af einhverjum slíkum sjónarmiðum sem bitna þá á því sem við erum að reyna að ná fram í orku. En auðvitað er þetta bara kjarni þess sem ég er að segja og ég held að hv. þingmaður hafi verið að nefna. Við verðum að vita nákvæmlega hvað við erum að gera. Við verðum að greina það hversu mikla orku við þurfum og í hvað hún eigi að fara. Við eigum ekki að fara af stað og virkja eitthvað út í bláinn og fara síðan að sækja einhvern veginn í framhaldinu einhverja atvinnustarfsemi sem gæti mögulega keypt þá orku sem við erum þá þegar búin að framleiða.
Ég læt það duga í bili.