154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:36]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður talaði í ræðu sinni um gæði ákvarðana og var þar að mig minnir að vísa til umsagnar Samtaka iðnaðarins sem benda á að með gjaldtöku fyrir þá þjónustu sem Orkustofnun veitir í sumum tilvikum sé hægt að tryggja að það sé ráðrúm fyrir starfsfólk til að sinna vinnunni almennilega, að það sé mannskapur á staðnum til að taka ákvarðanir á þeim grundvelli sem nauðsynlegt er að þær byggist á. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé ekki einmitt dálítið stórt skref vegna þess að eins og hv. þingmaður nefndi þá hafa deilur einkennt alla umræðu í kringum orkumálin og mætti svo sem nefna bara í tengslum við aðrar auðlindir sem Orkustofnun heldur utan um rannsóknir og nýtingu á. Það er ekki bara að það séu annars vegar hagsmunir þeirra sem vilja nýta og hins vegar væntumþykja hinna sem vilja landinu allt hið besta, ótti náttúruverndarsinna stafar líka af því að ákvarðanir hafa oft verið teknar á slæmum grunni, á ónógri þekkingu, of hratt og illa — hvort við séum hér ekki að stíga skref í átt frá því.