breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Jú, við erum auðvitað að reyna að slá einhvers konar undirstöðum utan um það að tiltekin starfsemi Orkustofnunar sé þá fjármögnuð að fullu og að það komi þarna inn einhver þjónustugjöld sem eiga þá að standa undir þeirri starfsemi. Ég treysti mér ekki alveg nákvæmlega, af því að ég er auðvitað ekki fagmenntaður í þessum fræðum, til að meta það nákvæmlega hvort nóg sé að gert eða hvort þetta muni nú algerlega skila því sem við vonum en auðvitað er það þannig að það er gríðarlega mikið álag í öllum okkar stofnunum þegar kemur að því að afgreiða erindi frá borgurunum, sem geta verið borgarar eða fyrirtæki að sækja um leyfi eða hvað það er. Við þekkjum bara í mörgum málaflokkum að svona mál dragast úr hömlu og það er auðvitað vegna þess að stofnanirnar er oft fjársveltar. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekkert einfalt að afgreiða þetta einn, tveir og þrír en ég myndi nú halda að þetta mál væri til þess fallið að styrkja þessar stoðir sem hv. þingmaður er að nefna. (Forseti hringir.) Hvort það skili sér að fullu í því sem til er ætlast verður bara tíminn að leiða í ljós en þetta er a.m.k. viðleitni.