breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir yfirgripsmikla ræðu. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í hans framtíðarsýn á orkumál í landinu. Hér höfum verið rætt um stjórnsýsluþáttinn, þ.e. Orkustofnun og gjaldtökuheimildir hennar, en það er af meiru að taka. Við Íslendingar höfum í raun nýskriðið út úr torfkofunum yfir á malbikið á örskömmum tíma. Það urðu mikil kaflaskipti þegar Búrfellsvirkjun var byggð á sínum tíma og í kjölfarið þegar byggðalínan náði loks hringinn í kringum landið. Svo urðu aftur kaflaskipti þegar Kárahnjúkavirkjun var byggð og ekki verður öðruvísi að orði komist en að þjóðin hafi klofnað í tvennt í því máli. Nú stöndum við á enn öðrum kaflaskiptum og því finnst mér vert að hugleiða hvaða stefnu þjóðin á að taka í raforkumálum. Eigum við að gerast orkumiðstöð og laða til okkar fleiri stórnotendur og ráðast í fleiri virkjanaframkvæmdir á borð við Kárahnjúka eða eigum við að takmarka frekari orkuframkvæmdir við raforkuþörf almennings og atvinnuvega sem fyrir eru í landinu? Hvaða leið telur hv. þingmaður að þjóðin eigi að fara í þeim kaflaskiptum sem við stöndum frammi fyrir?