breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta. Þetta er auðvitað góð og yfirgripsmikil spurning. Ég er nú reyndar þeirrar skoðunar að við séum bara ansi oft á tímamótum hér, bæði þegar við erum að ræða orkumál og eitthvað annað. Ég man vel eftir umræðunni um Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma og ég man alveg sérstaklega vel hvað ég átti erfitt með að taka harða afstöðu með eða á móti vegna þess að ég gat svo sannarlega skilið vel þegar náttúruverndarsinnar voru að benda á áhrifin á umhverfið, bæði út af lóninu og ekki síður út af stíflunni, hvernig sprengt var inn í gljúfrið og þetta var mikið tilfinningamál. Síðan getum við horft mjög glögglega til þess að atvinnuumsvif á svæðinu hafa auðvitað tekið stakkaskiptum til hins betra. Auðvitað er verið að framleiða þarna orku sem nýtist þarna mikið á svæðinu þannig að ég get alveg viðurkennt það að ég á mjög auðvelt með að skilja sjónarmið beggja aðila og það getur verið erfitt að komast að einhverri einni afdráttarlausri niðurstöðu.
Ég hef nú stundum sagt að mögulega er tími þessara risastóru virkjana liðinn en ég ætla hins vegar ekkert að útiloka einhverjar risastórar virkjanir ef þær eru að uppfylla þær kröfur sem við gerum til náttúruverndar og mótvægisaðgerðir séu þannig að við getum öll unað glöð við. Auðvitað er það núna að það fer svo mikill hluti af orkunni í stóriðju og það er auðvitað líka ástæðan fyrir því að okkur hefur tekist að byggja upp gott kerfi hringinn í kringum landið. Þetta hangir auðvitað svolítið saman. Auðvitað væri freistandi að segja, einmitt vegna þess hve hátt hlutfall stórrar stóriðju er í orkunotkuninni, að það væri skemmtilegt að breyta hlutföllunum aðeins, að það væri kannski aðeins meira af millistórum fyrirtækjum og smærri atvinnustarfsemi sem tæki til sín stærri skerf af kökunni.
Ég vil bara, eins og ég sagði í ræðunni, nálgast þetta út frá einhverri ákveðinni skynsemi, (Forseti hringir.) að við vitum hvað við viljum og virkjum í samræmi við það, að við séum ekki að göslast eitthvert af stað án þess að hafa neina stefnu þar að lútandi. Og það er auðvitað bara gríðarlega flókið mál að búa þannig um hnútana að við verðum öll sátt um það.