breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Þetta finnst mér skemmtilegt að setja upp með þessum hætti. Við erum auðvitað að tala um það hvernig þjónustu fólk er að fá, hvort sem það eru fyrirtæki sem eru að sækja um leyfi til að vera með orkufreka starfsemi eða hvort við erum með einstaklinga sem eru að reyna að sækja einhverja aðra þjónustu í kerfið með öðrum hætti. Stjórnsýslan okkar er auðvitað svolítið veikburða og það fylgir kannski að einhverju leyti því að vera smátt samfélag. En auðvitað er það þannig að — svo ég komi nú aftur að því sem ég nefndi aðeins í minni ræðu — þegar við erum hérna með t.d. flokka sem ná illa saman um einstök mál þá bitnar það nákvæmlega á öllu þessu. Það býr til umhverfi smáskammtalækninga hér og þar í staðinn fyrir að það sé einhver svona stór og breið stroka stefnumótunar, hvort sem við erum að tala um orkumál eða heilbrigðismál eða hvað það er. Þannig að já, ég held að það megi nú spyrða þessu tvennu saman þegar við erum að tala um annars vegar biðlista eftir heilbrigðisþjónustu eða þá leyfisveitingar almennt í kerfinu. (Forseti hringir.) Hlutirnir ganga of hægt hérna hjá okkur, það er of erfitt að sækja þjónustu. (Forseti hringir.) Það er oft erfitt að fá leyfi en síðan á sama tíma verðum við auðvitað að gera allar þær kröfur sem tilhlýðilegt er að gera í nútímasamfélagi.