154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[18:45]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hann fór svolítið breitt yfir sviðið. Ég vil leyfa mér að gera það líka í þessu andsvari og velta því upp að forsagan eða baksagan í þessu máli er að leyfisveitingar voru færðar úr ráðuneyti og yfir í þessa stofnun en því fylgdi ekkert fjármagn. Þetta er kannski gömul saga og ný í íslenskri stjórnsýslu. Það er líka oft þannig að verkefni ríkis eru færð yfir til sveitarfélaga án þess að þeim fylgi viðeigandi fjármagn og alltaf erum við einhvern veginn — ég hef oft lýst þessu sem bókhaldsbrellu. Þetta er einhver kostnaður sem er til í kerfinu. Ríkið vill losa sig við hann úr bókhaldinu vegna þess að það vill líta út fyrir að vera að spara eða losa sig við ákveðin verkefni til að spara en færir kostnaðinn bara eitthvert annað í kerfinu. Það kostar sitt og það bitnar þá annaðhvort á störfum þeirrar stofnunar, þeim sem eiga að fá þjónustuna eða almenningi á einn eða annan hátt. Allt er þetta bara einhver tilfærsla á tölum til að eitt bókhald líti betur út en annað. Það er svolítið mín upplifun af því hvernig þetta var með Orkustofnun, hún fær þarna fullt af verkefnum án þess að fjármagn fylgdi með og svo er hún gerð að einhverjum vondum kalli fyrir að vera of lengi að fara í gegnum þessi nýju verkefni sem hún fékk ekkert fjármagn fyrir.

Þetta er svo sem ekki eina stofnunin sem þetta á við um. Það eru auðvitað fjölmargar stofnanir á Íslandi sem ekki hafa getað sinnt sínum verkefnum með viðeigandi hætti vegna þess að þær eru ekki almennilega fjármagnaðar. Ég hef nefnt Samkeppnisstofnun í þessu samhengi. Nú veit ég að hv. þingmaður er svona, já, hægra megin við miðju þegar kemur að þessu og er kannski ekki endilega sammála mér þegar kemur að mikilvægi þess að hafa þetta allt saman mjög vel fjármagnað. En í því ljósi hvað þetta getur kostað í tíma og fyrirhöfn o.s.frv., erum við ekki einmitt að sjá dæmi um þetta? Þetta eru einhverjar bókhaldsbrellur sem bitna í raun (Forseti hringir.) á stofnuninni sjálfri og núna er loksins verið að vinna að einhverri lágmarksviðleitni til að þetta kerfi sem var sett upp fyrir löngu síðan geti rekist.