breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir þetta. Ég er nú reyndar ekkert ósammála hv. þingmanni um það að stofnanaumgjörðin hérna á Íslandi þarf auðvitað að vera öflug og þær stofnanir sem hafa raunverulegt hlutverk og skipta máli í samfélaginu verða auðvitað að vera vel fjármagnaðar. Og af því að hv. þingmaður kom inn á Samkeppniseftirlitið, Samkeppnisstofnun, þá er það auðvitað, vil ég meina, ákveðin lykilstofnun í íslensku samfélagi. Þegar stofnun á borð við Samkeppnisstofnun fær ekki nægt fjármagn þá rétt heldur hún í horfinu í ákveðnum lögbundnum hlutverkum en getur illa tekið að sér að rannsaka mál, greina markaði og fara í einhverjar frumkvæðisrannsóknir, sem er þó samt hugsunin á bak við stofnunina.
Við getum líka nefnt, eins og hv. þingmaður er að nefna, tekjuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga og farið auðvitað um út um víðan völl í þessu. Að einhverju leyti, ég kom inn á það hérna áðan, þá er það auðvitað þannig að við erum smátt samfélag og við verðum að leita leiða til þess að reyna að fara vel með aurinn. Hvort vel hafi tekist til að fjármagna Orkustofnun þegar verkefni voru færð á milli — væntanlega er þetta mál svolítil sönnun á því að þar hefði kannski mátt betur standa að verki.
En ég er aðallega bara talsmaður þess að við reynum að gera hlutina vel alls staðar í stjórnsýslunni. Ég er ekki þeirrar skoðunar að við eigum að fækka stofnunum bara til að fækka stofnunum. Ég vil hins vegar fara vel með aurinn. Við getum auðvitað alltaf verið í þeirri stöðu að vera að búa til einhverjar tilhliðranir í bókhaldi með því að færa verkefni á milli. En endapunkturinn er kannski síðan raunverulega meiri útgjöld vegna þess að það var ekki útfært vel. Það er auðvitað hægt að nefna dæmi um þetta fram og til baka hér og þar. En mig langar að endurtaka það að ég er ekki einhver talsmaður þess (Forseti hringir.) að svelta mikilvægar stofnanir þannig að þær geti ekki sinnt almennilega hlutverki sínu og allra síst mikilvægum stofnunum sem hafa (Forseti hringir.) bara tilhlýðilegt eftirlit með atvinnulífi eða réttindum borgaranna.