breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Það gleður mig að heyra að við hv. þingmaður erum sammála um mikilvægi þess að reka hér burðugar eftirlitsstofnanir almannahag til heilla. Þar er Samkeppniseftirlitið, sem ég veit ekki af hverju ég lét mér detta í hug að kalla Samkeppnisstofnun, mjög mikilvægur þáttur. Ég verð að nefna Samkeppniseftirlitið vegna þess að þarna erum við með dæmi um stofnun sem hefði mjög gott af því að geta innheimt svona gjöld eins og er verið að leggja til að Orkustofnun geti innheimt, þ.e. út af því að Samkeppniseftirlitið verður að fara í mat á samrunum þegar þeir eiga sér stað og þarf í raun að henda öllu öðru sem er mikilvægt og sem sú stofnun gerir, til hliðar meðan á því mati stendur vegna þess að stofnunin hefur einfaldlega ekki mannafla til að gera þetta öðruvísi. Ef við myndum gera Samkeppniseftirlitinu kleift að rukka gjald í samræmi við mannaflann og tímann sem fer í að fara yfir svona samruna þá gæti sú stofnun sinnt hinum lögbundnu hlutverkum sínum líka.
Ég er búin með tímann, virðulegi forseti. (Forseti hringir.) En það var kannski punkturinn sem ég var að reyna að koma að, að þetta ætti að eiga við um fleiri stofnanir, það regluverk sem er verið að setja upp hér.