breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Já, ruglingur með Samkeppnisstofnun og Samkeppniseftirlitið og allt það. Þegar við erum að ræða málin hérna í þaula þá getur það auðvitað gerst að við séum ekki alltaf að nota rétt heiti. Mér finnst þetta fara svolítið eftir því hvers eðlis verkefnin eru. Ef um er að ræða það að t.d. fyrirtæki sé að sækja til Samkeppniseftirlitsins út af samruna, og það er að frumkvæði fyrirtækjanna að gera það, þá eru þau í raun og veru líka í og með að sækja sér ákveðna þjónustu til stofnananna. Þá á auðvitað að vera hægt að fjármagna það hlutverk að einhverju leyti með því að þeir sem undir eru greiði fyrir. En síðan þegar við erum með eitthvað sem við getum kallað íþyngjandi eftirlit, eitthvert frumkvæðiseftirlit eða annað, þá getur það verið kannski svolítið viðkvæmara. Mér finnst þetta fara svolítið eftir því og það er svolítið það sem er verið að tala um í umsögnunum í þessu máli, að það þurfi að vera alveg skýrt fyrir hvað er verið að taka gjöldin og það eigi ekki að taka gjöld gjaldanna vegna.