breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Þetta hefur verið ansi góð umræða um Orkustofnun og orkumál í víðu samhengi hér í dag og jú, við náðum nú aðeins að byrja hana í gær en hún endurspeglar líka þennan, að ég held, djúpstæða misskilning sem við höfum oft á hlutverki Orkustofnunar sem væntanlega stafar af því hversu ótrúlega ógagnsætt heiti stofnunarinnar er. Hér höfum við mjög mikið rætt raforkumál enda hefur Orkustofnun jú miklu hlutverki þar að gegna en Orkustofnun er svo miklu meira. Í raun mætti segja að Orkustofnun sé útvörður ábyrgrar umgengni við auðlindir landsins, langflestar auðlindir. Orkustofnun sér um rannsóknir og rannsókna- og nýtingarleyfi hvað varðar raforku, hvort sem það er vatnsafl eða jarðvarmi eða vindur, en líka aðra jarðhitanýtingu eins og við notum til að hita þessi hús sem við stöndum hér í og síðan gefur hún út leyfi til efnisnáms. Jarðefni eru stór þáttur í starfi Orkustofnunar og það er kannski ekki úr vegi að staldra örlítið við þann punkt, kannski á eftir. Ég byrja á því að nefna líka að enn einn stór auðlindaflokkur sem heyrir undir eftirlit Orkustofnunar og leyfisveitingar er vatnsauðlindin, grunnvatnsstraumarnir sem er sífellt verið að sækja í af auknum þunga.
Í umræðunni, þó að hún hafi hverfst dálítið mikið um raforkuna hér í dag, eru sameiginlegir þættir með þeim áskorunum sem horfa við öðrum þeim verkefnum sem Orkustofnun hefur með höndum. Hér hefur t.d. nokkuð verið rætt um það hvort á Íslandi sé orkuskortur eða einfaldlega sú staða að Ísland sé uppselt eða íslensk raforka sé uppseld. Ég ætla ekki að dvelja mikið við það en við erum auðvitað að lenda í þessu á fleiri sviðum. Jarðvarminn t.d. er kominn á þann stað að hér á höfuðborgarsvæðinu þarf að grípa til skömmtunar þegar kuldatíð er á veturna. Það þarf að loka sundlaugum og skrúfa fyrir hjá ýmsum öðrum stórum notendum til að standa vörð um kjarnaþjónustuna sem er að halda heimilum íbúa höfuðborgarsvæðisins heitum. Ég er ekki viss um að nokkurn hefði órað fyrir þessari stöðu fyrir nokkrum árum vegna þess að það hefur alltaf verið hluti af auðlindaumræðunni á Íslandi að eiginlega öll okkar náttúruauðæfi séu óþrjótandi. Þetta er kannski holl lexía fyrir okkur, að fara að stíga inn í þann veruleika að þó svo að við búum í stóru og auðlindaríku landi þá eru okkar auðlindir, eins og allt annað sem frá náttúrunni kemur, ekki óþrjótandi.
Við erum í sumu farin að nálgast auðlindirnar á annan hátt. Svo við tökum aftur dæmið af heita vatninu á höfuðborgarsvæðinu þá hefur Orkuveitan tekið upp á því að gefa borholunum sínum sumarfrí. Þá er það þannig ef ég man rétt að höfuðborgarsvæðið er keyrt á tveimur kerfum í grunninn, annars vegar háhitavatni frá Nesjavöllum og ofan af Hellisheiði og hins vegar frá lághitakerfunum í Mosfellsdal og Laugardalnum. Venjulega hefur verið mjög stíf lína þarna á milli þannig að þessar tvær vatnsuppsprettur mætist ekki í heitavatnskerfi höfuðborgarsvæðisins. Þetta hefur leitt til sóunar í kerfinu. Þegar fór að örla á þessum skorti fór Orkuveitan síðan að skoða hvernig væri hægt að breyta þessu þannig að það væri þannig að háhitasvæðin, sem framleiða nokkuð jafnt magn af heitu vatni allt árið um kring, og þurfa bara að gera það vegna þess að þeirra aðalframleiðsluvara er rafmagn og þar er eftirspurnin jöfn allt árið um kring, gætu tekið yfir að hita allt höfuðborgarsvæðið yfir heitustu mánuðina. Þetta kallaði á alls konar pípulagningarvinnu og verkfræðihugmyndir og það þurfti að breyta straumstefnu í heilu hverfunum og það eru heilmiklir skruðningar sem fylgja svona breytingum. En þetta verkefni tókst Orkuveitan á við og nú gerir hún þetta þannig að þegar eftirspurnin dregst saman yfir sumarmánuðina þá getur hún bara slökkt á lághitasvæðunum sínum og leyft þeim að jafna sig mánuðina frá júní og fram í september þannig að þar vex og batnar vatnsstaðan á meðan háhitasvæðin anna allri eftirspurninni. Svo um leið og það dugar ekki til, háhitavatnið, þá er hægt að skrúfa frá Laugardalnum og hleypa honum aftur inn á kerfið. Þetta hljómar svo skynsamlega að manni þykir næstum furðulegt að þetta hafi ekki verið staðlað verklag fyrr en bara nýlega. Það var ekki fyrr en við stóðum frammi fyrir skortinum að þetta var innleitt með þeim hætti sem er núna. Kannski er þetta dæmi um það, herra forseti, að neyðin kenni naktri konu að spinna. Þetta er eitt af þeim mómentum.
Sama er síðan uppi á teningnum varðandi raforkuna og þar kannski stöndum við frammi fyrir — við höfum rætt dálítið raforkuna í tengslum við þau svæði þar sem rafmagn er notað til að halda hita á húsum fólks, vegna þess að þar held ég að fólki hafi brugðið nokkuð í brún og íbúar landsins orðið frekar hugsi yfir stöðunni sem skapaðist þegar fjarvarmaveitur víða um land og kannski sérstaklega á Vestfjörðum gátu ekki lengur hitað upp vatn með raforku heldur þurfti að grípa til olíukyndingar og tölurnar eru stjarnfræðilegar, forseti. Einhvers staðar á bilinu tvær til þrjár milljónir lítra af olíu þarf hvern þessara vetra til að halda hita á Vestfirðingum og ástæðan er — eigum við að kalla það orkuskort eða eigum við að kalla það, hvað eigum við að segja, skruðninga við að fara á milli kerfa?
Fjarvarmaveiturnar, á Vestfjörðum sérstaklega, eru þetta 40–50 ára gamlar, frá tíma þar sem var dálítið mikil umframorka í kerfinu. Við skulum bara rifja upp að þegar Blönduvirkjun var tekin í gagnið þá var í mörg ár enginn kaupandi að allri orkunni þaðan, þannig að þeirri orku þurfti einhvern veginn að koma í vinnu og þá fann Landsvirkjun upp á þessari vöru sem hvergi er til í raforkukerfum heimsins, að ég tel, sem heitir skerðanleg raforka. Þá er sem sagt boðið upp á gæðavöruna sem heitir forgangsorka hér á landi, sem er megavattið sem þú veist að þú getur alltaf gengið að, þú bara borgar fullt verð fyrir hana og hvað sem tautar og raular þá tryggir Landsvirkjun eða hver annar sem er að þú fáir hana. Skerðanlega orkan er hins vegar þannig að þú færð hana bara þegar nóg er til en þú færð hana á útsöluverði. Þegar fjarvarmaveiturnar á Vestfjörðum voru teknar í gagnið, um svipað leyti og ég fæddist, þarna í kringum 1980, þá var skerðanleg raforka seld á 15% af því verði sem forgangsorka kostaði og þannig gekk hagkvæmnisútreikningurinn upp. Þannig var hægt að bjóða Vestfirðingum upp á upp hitað vatn til að halda heimilunum heitum á verði sem var þolanlegt. Þetta var dýrara en í jarðhitahéruðum en þolanlegra verð. Síðan eru liðin mörg ár og verðið á skerðanlegri orku hefur farið úr því að vera þetta á að giska 15% af því sem forgangsorkan kostar og upp í að vera nær 50%. Einhvern veginn er það samt látið ganga upp. Kostnaðurinn eykst og rennur út til notenda, það er fólkið á Vestfjörðum sem borgar fyrir þessa hækkun, en samt er þetta ódýrara en að nota forgangsorku.
Í umsögn um mál sem við ræddum hér fyrir helgi benti Orkubú Vestfjarða á að ef raforka til kyndingar hefði verið greidd fullu verði forgangsorku þá væri það kostnaður sem hlypi á kannski 200 milljónum á ári sem myndi auðvitað bara dreifast á íbúa Vestfjarða, þannig að þetta væri stór biti. En hérna er stór biti sem við þurfum að velta fyrir okkur hvort sé skortur á orku eða skortur á orku á viðráðanlegu verði vegna þess að við þurfum sem samfélag að geta forgangsraðað raforku og jafnvel verðlagt hana á ólíkan hátt eða verið með eitthvert stuðningskerfi til þess að það sé ekki sama hvort þú sért að kaupa rafmagn til að hita upp hús eða til að reka verksmiðju, að annað sé kannski kjarnaþjónusta sem þurfi að standa vörð um svo fólki verði ekki of kalt heima hjá sér, á meðan hitt sé mögulega starfsemi sem geti sveiflast eftir því sem framboðið breytist.
Ég nefni þetta bara, forseti, vegna þess að það fór að hvarfla að mér í umræðunni sem við áttum hér fyrr í dag hvort tími skerðanlegrar raforku sem vöru á íslenskum orkumarkaði væri kannski liðinn. Þá þurfum við bara að setjast saman yfir það og sjá hvernig við leysum úr því án þess að velta kostnaðinum yfir á t.d. fólk á landsvæðum sem búa ekki að gnótt jarðvarma til að hita hús eins og við hér á höfuðborgarsvæðinu.
Hér er ég búinn að nefna það sem er hægt að kalla skort eða bara það að ákveðnar tegundir af orku séu uppseldar, búinn að ræða þá annars vegar rafmagn og hins vegar hita en af hinum efnisþáttunum sem Orkustofnun höndlar með þá held ég að við gætum farið að nálgast einhverja svipaða stöðu varðandi bæði jarðefni og vatn. Tökum t.d. bara sand. Sandur er víst ekki það sama og sandur. Á heimsvísu er ákveðin tegund af sandi sem notuð er í framleiðslu á gleri bara tæmandi auðlind. Efnissamsetningin þarf að vera af ákveðnu tagi og það eru bara ákveðin svæði sem geta boðið upp á þennan sand þannig að það sem við sjáum einhvern veginn allt í kringum okkur, sandurinn sem skreytir fjörur og fjöll og firnindi, er ekkert endilega nothæfur í þá iðnaðarferla sem henta hverjum og einum tíma. Þetta er samt ein af þessum auðlindum sem við nálgumst eins og hún klárist aldrei.
Eins er farið að nálgast núna íslensku mölina og fjöllin og fjörusandinn. Það eru ótal fyrirtæki komin með hugmyndir um ótal malarnámur sem fela ýmist í sér að rífa niður heil fjöll í Þrengslum eða grafa upp stóran hluta af Landeyjasandi eða glefsa dálítið vel í Mýrdalssand; allt saman gríðarlega stór inngrip inn í eitthvað sem okkur líður kannski að óathuguðu máli eins og sé ótæmandi auðlind en íslensku eldfjöllin — þó að okkur finnist við eiga marga grágrýtishrauka eru þau á heimsvísu fágæt. Það að skófla einu þeirra ofan af Þrengslum og senda úr landi í mulning til að byggja steinsteypt háhýsi er kannski ekki það besta fyrir framtíðina. Eins er með grunnsævið utan við Landeyjahöfn sem sömuleiðis er verið að ræða að gera að námu —— við köllum það víst námu þótt það sé neðansjávar — þar vitum við ekki almennilega, Hafrannsóknastofnun veit ekki almennilega hvaða áhrif það gæti haft á lífríkið, á fiskstofna sem mögulega geta haft miklar hrygningarstöðvar þar í kring. Hér kristallast einmitt vandinn. Orkustofnun er hér leyfisveitandi og sækir umsagnir til ýmissa stofnana. Þrátt fyrir að við myndum samþykkja hér þetta frumvarp um að Orkustofnun geti tekið þjónustugjöld til að hraða afgreiðslu sín megin þá í fyrsta lagi kemur það ekki til móts við þekkingargrunninn sem okkur vantar oft og tíðum. Það liggur ekki fyrir nægjanleg vissa t.d. um það hvað stórir grunnvatnsstraumar á Reykjanesinu eða í nágrenni Þorlákshafnar þola mikið af vatnsfreku landeldi eða vatnstöku til niðurdælingar á koltvísýringi. Þarna vantar frekari rannsóknir sem ekki er hægt að fjármagna með þjónustugjöldum heldur þyrfti bara að standa straum af sem hluta af kjarnarekstri stofnunarinnar. Þetta er annar vandinn, það að Orkustofnun sem slík hefur ekki haft nægilega burði til að viða að sér upplýsingum og sérfræðiþekkingu sem væri nauðsynlegt að eiga þar innan húss.
Síðan er hitt að í flestum stærri leyfisveitingarferlum sem fara í gegnum hendur Orkustofnunar þá þarf hún samkvæmt lögum að leita umsagnar annarra stofnana. Þar er kannski oftast um að ræða Umhverfisstofnun eða Náttúrufræðistofnun eða Hafrannsóknastofnun og við þurfum að sjá hvernig framkvæmd þessara laga gengur upp, hvort flöskuhálsar muni einfaldlega að færast til, ef Orkustofnun nær með þjónustugjöldum að smyrja sína ferla þannig að þeir gangi hraðar, hvort það verði einfaldlega til þess að færa þrýstinginn og mögulegar tafir yfir á aðrar stofnanir sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna í öllum þessum ferlum. Þetta þurfum við að skoða. Það mun skipta sköpum að takist vel til með allt ferlið, ekki bara það sem snýr að þessari einu stofnun. Síðan þurfum við að vera vakandi fyrir umræðunni um það að aðhaldskrafa eins og hún hefur verið sett fram af ríkisstjórninni á síðustu árum, sem einhver flatur niðurskurður þvert á stofnanir, kemur á einhverjum tímapunkti of hart niður á litlum stofnunum sem hafa þá ekki lengur burði til þess að sinna grunnþekkingaröflun og geta þar af leiðandi ekki uppfyllt hlutverk sitt, eins mikilvægt og það kann að vera, (Forseti hringir.) eins og t.d. Orkustofnun, sem útvörður þess að standa með almenningi (Forseti hringir.) gagnvart ásælni í auðlindir Íslands.
(Forseti (ÁsF): Bið þingmenn að virða tímamörkin.)