breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fróðlega ræðu. Mig langar að spyrja hv. þingmann um leyfisveitingar. Við höfum mikið rætt um þær leyfisveitingar sem Orkustofnun gefur út á grundvelli raforkulaga. En ég vildi spyrja hv. þingmann, vegna þeirrar sérþekkingar sem hann býr yfir á þessu sviði, um lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis sem Orkustofnun sér um að framfylgja. Nú skilst mér að þessi lög fjalli um leit að vinnslu á jarðgasi. En hvers vegna erum við með lög um þetta atriði? Ég held fyrir það fyrsta að það sé ekki bara olíu eða gas að finna á Íslandi eða í kringum Ísland. Og svo það sem meira er, átti ekki að banna olíuleit samkvæmt stjórnarsáttmálanum? Ég hef ekki séð það bannað enn þá a.m.k. Veit hv. þingmaður hver staðan er á þessum málum varðandi leit að olíu og gasi í kringum Ísland og á Íslandi? Megum við búast við að hingað komi stórfyrirtæki að leita að olíu á Drekasvæðinu einhvern tímann á næstu árum? Og svo varðandi gasið vil ég benda á að við erum ekki inni í gaspakkanum. Ef við förum að leita að gasi í kringum Ísland þá er kannski vert að skoða það út af orkupökkum Evrópusambandsins.