154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[19:15]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja mig að einu af því sem mér finnst skemmtilegast að ræða hér, sem er hinn úrelti draumur íslenskra stjórnvalda um að finna olíu á Íslandi eða við Ísland. Þetta er gamall draugur sem var vakinn upp með dálitlum krafti eftir hrun. Þá fór Orkustofnun af stað í leyfisveitingaferli. Þá voru boðin út leitarleyfi 2009 og 2011, ef ég man rétt, og fóru af stað þrjú verkefni þar sem hljóðsjárrannsóknir voru framkvæmdar á Drekasvæðinu norðaustan við Ísland, alveg við mörk efnahagslögsögunnar þar sem hún snertir efnahagslögsögu Noregs. Síðan leið og beið og olíuverð á heimsmarkaði lækkaði og þessi fyrirtæki sáu að þetta myndi aldrei borga sig þannig að þau skiluðu inn leyfunum. Þar með hefði Íslandi verið í lófa lagið að segja bara opinberlega á alþjóðavísu: Heyrðu, við ætlum ekki að gera þetta, við ætlum ekki að vera eitt af þeim löndum sem leitar að olíu. Við áttum okkur á stöðunni í loftslagsmálum. Við ætlum bara að setja bann við þessu.

Vorið 2021 lagði ég reyndar fram frumvarp þess efnis sem komst hingað í 2. umræðu en stjórnarliðar lögðu ekki í að samþykkja það heldur vísuðu því til ríkisstjórnar. Í framhaldinu eftir kosningar kom inn í stjórnarsáttmála að ríkisstjórnin hygðist ekki gefa út leyfi til olíuleitar og vorið 2022 lagði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fram frumvarp um að banna olíuleit. Hann mælti aldrei fyrir því og það birtist aldrei aftur. Og núna þegar við spyrjum ráðherrann segir hann að hann ætli bara ekkert að koma með þetta frumvarp aftur.

Þetta er svo gott dæmi um atriði þar sem Ísland getur sýnt forystu (Forseti hringir.) á heimsvísu af því að það yrði hlustað ef Ísland segði: Við erum búin að banna þetta formlega. (Forseti hringir.) Þannig getum við orðið leiðtogar á alþjóðavísu.