breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti: Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er áhugavert að þetta sé í stjórnarsáttmálanum en þeir hafa ekki framfylgt því frekar en öðru. Þetta minnir mig alltaf á loftslagskafla stjórnarsáttmálans. Fjórum eða fimm sinnum ætlar íslenska ríkisstjórnin vera best í heimi í loftslagsmálum. Það eru aðvaranir núna á höfuðborgarsvæðinu út af loftslagsmengun.
Það er klárt að Norðmenn eru ekki að rannsaka og leita olíu á Jan Mayen-svæðinu en Drekasvæðið er beint framhald af Jan Mayen-svæðinu og Pareto, norska leyfisfyrirtækið, tók þátt í útboðinu á sínum tíma.
Í mínu síðara andsvari vil ég spyrja hv. þingmann um þau áform ríkisstjórnarinnar að sameina Orkustofnun og Umhverfisstofnun. Telur hv. þingmaður að það muni skila einhverri hagræðingu í ríkisrekstri? Vil ég þar benda á vanfjármögnun Orkustofnunar sem við erum að reyna að eiga við í þessu frumvarpi. Þá er kannski rétt að spyrja: Er þörf á að sameina stofnanir, sem virðast hreinlega svo fjársveltar að þær geta ekki sinnt lögbundnum hlutverkum, til að ná fram hagræðingu? Hvernig er hægt að svelta tvær fjársveltar stofnanir og ná fram hagræðingu? Liggur ekki beinast við að hér sé svarið að stilla hlutum þannig upp að hægt sé að segja að það verði enginn rekinn við sameininguna þegar raunin er sú að það hefur þegar þurft að segja upp fólki vegna þess að stofnanirnar hafa verið fjársveltar einmitt til þess að auðvelda sameiningu? Það að fara að fjársvelta hérna — hvar á þessi hagræðing að koma? Á koma enn ein aðhaldsaðgerðin, enn ein aðhaldskrafan til þess að koma á hagræðingu hjá þessum mikilvægu stofnunum?
Varðandi þjónustugjaldið sem hér er til umræðu þá er það í einum lið af sjö liðum í 2. gr. laga um Orkustofnun þar sem þeir geta mögulega náð sér í aukatekjur og það eru 6–13 milljónir á ári. 6 milljónir á ári, það er ekki hálfur starfsmaður. 13 milljónir á ári, það nær sennilega ekki heilum starfsmanni.