breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég held að hagræðingin í sameiningu þessara tveggja stofnana sé sýnd veiði en ekki gefin vegna þess að þó að sumar deildir innan þeirra heiti kannski sömu nöfnum þá er ekkert endilega víst að sérfræðingarnir muni nýtast í sömu verkefni. Mögulega verður einhver stoðþjónusta sem verður hægt að sameina og þar með að ná fram einhverri smá hagræðingu. En ég held að það sé ekki til að vega upp það fjársvelti sem hefur verið á báðum stofnunum, bæði Umhverfisstofnun og Orkustofnun, árum saman. Og að ríkisstjórn sem segist vilja setja orkuöflun í forgang sé ekki löngu búin að dæla pening í Orkustofnun til að liðka fyrir leyfisveitingaferli, það segir okkur náttúrlega að þessi ríkisstjórn meinar aldrei það sem hún segir.
Talandi um það að meina það sem við segjum, ég deili því með hv. þingmanni að finnast loftslagskafli stjórnarsáttmálans mikil skemmtun. Best í heimi, er eitthvað sem ríkisstjórnin segir en við þurfum að gera eitthvað til að standa undir þannig staðhæfingum. Olíuleitarbannið er svo gott dæmi um innantóm orð. Það stendur í stjórnarsáttmálanum að þau ætli ekki að gefa út ný leyfi. Það er enginn að banka upp á til að biðja um ný leyfi. Á alþjóðavísu eru bandalög ríkja sem eru að banna olíuleit. Ísland fær ekki aðild að slíkum bandalögum með jafn veika skuldbindingu og einhver orð í stjórnarsáttmála eru. Ef Ísland myndi vilja skreyta sig með þessum stimpli formlega þá þyrfti einfaldlega að samþykkja lög. En það leggja þau ekki í.