breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og af einlægni þakka ég honum umhyggju hans vegna mögulegrar grafalvarlegrar framtíðarsýnar míns góða bæjarfélags, Ölfuss. Auðlindir eru sannarlega ekki óþrjótandi og sá veruleiki blasir nú við okkur. Hamfarirnar í Grindavík leiddu okkur vel fyrir sjónir hvernig jafnvægi getur raskast á milli gnægtar og skorts á einu augabragði.
Stofnanir ríkisins sinna mikilvægum samfélagsverkefnum og ekki síst á sviði raforkumála. Þessar stofnanir þurfa að hafa bolmagn og fjármagn til að sinna hlutverki sínu af fagmennsku og skilvirkni. Á sama tíma höfum við undanfarin ár séð dæmi þess að fjárveitingar til ýmissa undirstofnana hafa verið skornar niður sem hefur leitt til lakari þjónustu og erfiðleika við að sinna lögbundnu hlutverki. Því langar mig að spyrja: Hvernig telur hv. þingmaður að tryggja megi undirstofnunum ríkisins nægar fjárveitingar til að þær geti sinnt hlutverki sínu sem skyldi og veitt landsmönnum góða þjónustu? Er það einfaldlega best gert með gjaldtökuheimildum svipuðum þeim sem koma fram í þessu frumvarpi eða er nauðsyn á betri forgangsröðun í fjárlögum með tilliti til mikilvægis hverrar stofnunar fyrir samfélagið?