breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég held að það væri ekki skref í heillaátt að styðja okkur of mikið við gjaldtöku til að reka opinberar stofnanir vegna þess að þá byggist upp sérþekking og bolmagnið byggist upp þar sem einhverjir efnahagslegir hvatar eru til að sækja um þjónustu. Stofnanir hins opinbera, sérstaklega þær sem snúast um landið okkar, þurfa að hafa miklu víðari sjóndeildarhring. Þær þurfa að geta sinnt líka þeim málaflokkum sem enginn er tilbúinn til að borga fyrir. Svo við tökum hliðstæðu úr friðlýsingarmálum þá er farið að bera meira á því að gjaldtaka sé að ryðja sér til rúms á bílastæðum og fjölsóttum ferðamannastöðum til að standa straum af landvörslu og annarri þjónustu þar. Þetta er kannski hægt við Jökulsárlón eða Gullfoss og Geysi eða Þingvelli eða Seljalandsfoss. Þetta er ekki hægt við einhverja litla friðlýsta bletti á Vestfjörðum og þetta er alls ekki hægt við þau friðlýstu svæði sem við beinlínis viljum ekki að ferðamenn komi til vegna þess að náttúran þar er svo viðkvæm. Þannig að ef landvarsla Umhverfisstofnunar miðaði við getu svæða til að standa undir gjaldtöku þá værum við komin í ógöngur.
Varðandi það að sýna málefnum Ölfuss áhuga þá stafar það annars vegar af því að mér þykir þróunin svo öfgakennd að það er ekki annað hægt síðustu misseri og svo stafar það mögulega af því að ég er Ölfusingur sjálfur, Andrés Ingi frá Hjarðarbóli í Ölfusi (Forseti hringir.) eins og Sunnlenska fréttablaðið kallar mig alltaf þegar eitthvað er af mér að frétta.