breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir upplýsingarnar og er nú margs fróðari um hans uppruna. En hvaða áhrif telur þú, hv. þingmaður, að langvarandi fjársvelti undirstofnana geti haft á samfélagið til lengri tíma litið, burt séð frá þessu tilgreinda máli um Orkustofnun þar sem langur meðferðartími blasir nú við? Ég tel afar brýnt að stjórnvöld tryggi að undirstofnanir ríkisins búi yfir nægu bolmagni og fjárhagslegu öryggi. Nú eru almennar aðhaldskröfur í ráðuneytum, ríkisstofnunum og í rauninni hjá flestum aðilum í stjórnsýslunni. Aðhaldskröfur eiga þó ekki við um alla en eins og kemur fram í breytingartillögum fjárlaganefndar leggur nefndin til að lögreglan, Landhelgisgæslan og dómstólar verði undanþegin kröfunni. Það stendur ekki til að vefengja þá ákvörðun fjárlaganefndar en ég spyr hér um almennar hugleiðingar þingmannsins um forgangsröðun í aðhaldskröfum ríkisstofnana. Ég hlakka til að heyra þín sjónarmið í þessum efnum.