breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Já, ég held að það væri hægt að taka langa fundi í að ræða þessa hugmyndafræði sem birtist í aðhaldskröfu til ríkisstofnana. Mér finnst hún lýsa svo ótrúlega miklu hugmyndaleysi þegar kemur að úrbótum í ríkisrekstrinum, eins og stjórnarflokkunum detti engin leið önnur í hug til að ná fram bættri þjónustu eða ódýrari þjónustu en að segja við stofnanir: Heyrðu, við ætlum að taka 2% af peningunum ykkar á næsta ári. Og þá allt í einu muni hlutir lagast. Það vantar einhverja skapandi hugsun inn í þetta. Það vantar einhverja nýsköpunarhugsun inn í það hvernig stjórnarflokkarnir nálgast opinber fjármál, vegna þess að þetta hefur ekki alltaf verið svona. Þessi hugmynd um aðhaldskröfu er tiltölulega nýtilkomin, þetta er einhver orþódoxía sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur innleitt í fjármálaráðuneytið. Ég reyni stundum að ímynda mér hvernig sé að vera stjórnandi hjá ríkinu og fá aðhaldskröfu í fangið sem þú átt síðan bara að útfæra einhvern veginn eftir þínu eigin nefi. Áttu að hætta að sinna einhverju grunnverkefni sem er lögbundið? Áttu að hætta að vera með matráð? Þessi aðhaldskrafa byrjar auðvitað á því að fólk útvistar hlutum þannig að fyrst kemur aðhaldskrafan niður á ræstingafólki og matráðum, fólkinu á lægstu laununum. Það eru oft sömu einstaklingar síðan sem sinna þessu útvistuðu, bara á enn lægri launum hjá einhverjum fyrirtækjum sem verða milliliðir sem maka krókinn. Sú hugmynd um að hagræða í ríkisrekstri eða ná fram einhverri nýsköpunarhugsun — kíkjum á ríkisskattstjóra sem innleiddi framtal á netinu. (Forseti hringir.) Það hefur væntanlega kostað eitthvað en hugsum okkur allan vinnusparnaðinn (Forseti hringir.) sem stafræn framtalsskil hafa skilað, öllu samfélaginu til hagsbóta.
(ÁsF: Ég minni þingmanninn á ræðutímann.)