breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar, til að heimila Orkustofnun að taka ákveðin þjónustugjöld fyrir hinar og þessar leyfisveitingar sem sú stofnun stendur í. Þetta er í sjálfu sér ágætt mál. Ég hef þannig séð ekki áhyggjur af því að þetta þýði að Orkustofnun muni einungis einbeita sér að þessum leyfisveitingum. Ég held að það sé ágætt að Orkustofnun fái greitt fyrir þá vinnu sem felst í að afla þeirra upplýsinga og þá vinnu sem þarf við svona leyfisveitingaferli, sem eru mannaflafrek og tímafrek verkefni sem stofnunin er lögbundin til að sinna. Henni ber að sinna þessu verkefni þannig að í sjálfu sér er það ágætt að hún fái þetta tæki til að innheimta gjöld fyrir þá vinnu sem innt er af hendi.
Forsaga málsins er auðvitað sú að leyfisveitingar ýmsar voru fluttar frá ráðuneyti og yfir í Orkustofnun við innleiðingu Árósasáttmálans inn í íslenskan rétt. Eins og vill svo oft verða þegar verkefni eru færð á milli stofnana eða eininga, hvernig sem það nú er, sér í lagi þegar verkefni eru færð af hálfu ríkisstjórnarinnar, ríkissjóðs, yfir á eitthvert annað apparat þá fylgir ekki fjármagn. Þetta er, eins og ég hef áður sagt, gömul saga og ný. Það er mjög algengt að verkefnin séu færð eitthvert annað án þess að viðhlítandi fjármagn fylgi verkefnunum og þá spyr maður sig: Hvað er eiginlega verið að gera með slíkri tilfærslu? Er verið að tryggja að verkefnið sé unnið á réttum vettvangi eða er verið að kasta frá sér einhverju dýru, einhverju pirrandi eða óþægilegu til þess að geta strokað það út úr bókhaldinu sínu og þurfa í raun ekkert að pæla í því meir, burt séð frá því hvort okkur beri skylda til þess lögum samkvæmt að tryggja að verkefnunum sé sinnt?
Svo virðist vera í þessu máli að verkefni sem ráðherrar tóku áður að sér hafi verið færð yfir til Orkustofnunar án þess að hún fengi viðeigandi fjármagn til að geta sinnt þeim. Það hefur auðvitað þýtt verulega veikingu á getu Orkustofnunar til að sinna í rauninni öllum sínum verkefnum með viðhlítandi hætti þar sem hún verður að taka við beiðnum um leyfisveitingar. Hún verður að vinna þessar leyfisveitingar. Henni ber lögbundin skylda til þess og þarf samkvæmt stjórnsýslulögum að svara erindum og reyna að hafa málshraðann sem bestan og virða rannsóknarregluna. Allt kostar þetta tíma og vinnu mjög takmarkaðs hóps starfsmanna. Það að við séum að gera Orkustofnun kleift að setja gjaldskrá og rukka fyrir unna vinnu gagnvart þessu aðgreinda atriði tel ég að sé til þess fallið að skapa rými til að sinna einnig öðrum verkefnum stofnunarinnar. Þau eru, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson kom hér inn á áðan, fjöldamörg og snúa t.d. að mikilvægri rannsóknarvinnu um öll þau hafsins og landsins gæði sem Orkustofnun hefur forræði yfir að rannsaka og meta.
Það er ekki þar með sagt að ég telji svona innheimtumódel hentugt fyrir hvaða stofnun sem er, hvað þá heldur að það muni duga til þess að Orkustofnun, sem stendur reyndar til að sameina annarri stofnun, geti staðið undir sínu hlutverki með fullnægjandi hætti ef ekki verður bætt við grunnfjármagn til stofnunarinnar einnig. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom ágætlega inn á það í ræðu hér áðan að þessi aðhaldskrafa sem hefur tröllriðið fjárlögum síðastliðinna ára leikur auðvitað margar mikilvægar stofnanir ansi grátt og fjármagn sem úthlutað er til stofnana virðist oft, og oftar en ekki meira að segja, ekki vera í neinu samræmi við það fjármagn sem stofnunin þarf til að sinna sínum lögbundnu verkefnum, enda liggur ekki fyrir neins staðar skýr útlistun og greining á því hvaða lögbundnu verkefnum hver stofnun þarf að sinna.
Þetta hefur hv. þingmaður og kollegi minn, Björn Leví Gunnarsson, lengi verið að reyna að draga fram í dagsljósið. Hann hefur lagt fram hverja fyrirspurnina á fætur annarri til að reyna að fá það fram í dagsljósið hverjar þessar lögbundnu skyldur eru sem hvíla á stofnunum landsins. Hvers vegna gerum við það? Jú, vegna þess að gagnsæi skiptir Pírata höfuðmáli. Það skiptir okkur máli að það sé almenningi skýrt hver lögbundin verkefni stofnana eru. Hvers vegna? Vegna þess að þar með getum við metið hvað það kostar að reka þessar stofnanir okkar þannig að þær séu í samræmi við lög. Píratar leggja mikið upp úr gagnsæi og við leggjum líka mikið upp úr réttarríkinu og því að lög skuli þá standa. Ef við erum á annað borð að samþykkja lög á Alþingi Íslendinga þá skulum við líka tryggja að þau geti gengið fyrir sig, að þau séu uppfyllt. Hins vegar er það allt of oft þannig að við setjum lög hér, liggur við eins og út í bláinn vegna þess að svo tryggjum við ekki að fjármagnið sem þarf til þess að lögin séu uppfyllt fylgi með.
Gott dæmi um þetta er ágætisfrumvarp hv. þingmanna í Viðreisn fyrir ekkert svo löngu síðan um niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Þetta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, að ég tel, í þessum sal en því fylgdi ekki fjármagn. Þetta var bara upp á grín. Þegar þetta fær að viðgangast trekk í trekk, ár eftir ár, við erum að samþykkja lög, við erum að segja að ákveðin þjónusta verði veitt, ákveðið eftirlit eigi að vera haft o.s.frv., en við setjum ekki fjármagnið sem þarf til að sinna þessum verkefnum með, þá erum við ekkert hægt og hljótt heldur bara stöðugt, viðstöðulaust, að grafa undan mikilvægi lagasetningar. Við erum að grafa undan trú á því að lög skipti yfir höfuð máli í landinu. Af hverju erum við að setja lög ef það stendur svo ekki til að tryggja að það sé farið eftir þeim af því að við tímum því ekki? Hvers konar virðingu berum við þá fyrir lögunum í landinu, löggjafinn, sjálfur, ríkisstjórnin, sem á að framkvæma vilja löggjafans? Þetta er nú ein af stóru ástæðunum fyrir því að þetta skiptir Pírata gríðarlega miklu máli. Það skiptir okkur miklu máli að það sé vandað til allrar lagasetningar og að lög séu sett til þess að fara eftir þeim en ekki bara til þess að vera með einhverjar viljayfirlýsingar í orði en ekki á borði.
Þetta var kannski svolítill útúrdúr, virðulegi forseti, en mér fannst þetta mikilvægur útúrdúr til að útskýra hvernig við nálgumst gjaldtöku og fjármögnun á opinberum stofnunum. Við teljum nefnilega afskaplega mikilvægt að þær stofnanir sem vinna að því að tryggja hagsmuni almennings, vernda þá gagnvart óheilbrigðri samkeppni, verja réttindi borgaranna gagnvart ofríki stjórnvalda eins og umboðsmaður Alþingis gerir, svo ég nefni dæmi um hann, eða það sem ég var að vísa í hér rétt áðan, Samkeppniseftirlitið sem á að tryggja heilbrigt samkeppnisumhverfi á Íslandi, fyrirtækjum og almenningi í landinu til heilla — að stofnanir sem þessar séu nógu vel fjármagnaðar til að þær geti starfað með eðlilegum og góðum hætti.
Þá má spyrja sig: Hvernig er hægt að fjármagna þessar stofnanir? Ég hef vísað til Fjármálaeftirlitsins, Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands eins og það heitir núna eftir að sú stofnun var sameinuð Seðlabankanum og við getum svo sem velt vöngum yfir því hvort það hafi verið góð hugmynd á sínum tíma. En gott og vel. Fjármálaeftirlitið getur fjármagnað sig að stóru leyti á gjöldum sem það tekur fyrir eftirlitið sem það sinnir gagnvart fyrirtækjum, bönkunum sérstaklega. Þetta módel hefur gert Fjármálaeftirlitinu kleift að vaxa í takt við stækkun á þeim geira sem það hefur eftirlit með. Það tekur gjald fyrir veitta þjónustu. Þetta á ekki við um t.d. Samkeppniseftirlitið sem getur ekki tekið gjald af eftirlitsskyldum aðilum fyrir eftirlitið sem ber lögum samkvæmt að hafa með þeim. Það hefur þýtt að Samkeppniseftirlitið hefur dregist gríðarlega aftur úr í umsvifum samanborið við geirann sem það á að hafa eftirlit með og það eru auðvitað öll fyrirtæki landsins. Þetta þýðir að við erum með veikt samkeppniseftirlit á sama tíma og viðskiptalífið er búið að stækka og blómstra hér á landi. Það setur okkur í þá stöðu að Samkeppniseftirlitið er ekki fært um að sinna eftirlitinu í takt við þörf eins og staðan er núna. Við erum með þessu alltaf að leyfa getu okkar til að tryggja viðunandi samkeppni á Íslandi að dvína og dvína.
Með þessari nálgun er gjald tekið fyrir lögbundna þjónustu. Í tilfelli Orkustofnunar, sem við erum að ræða hér, er lögbundin þjónusta leyfisveitingar, leyfisveitingaferli, tíminn sem fer í að undirbyggja ákvarðanir sem þessar o.s.frv. Í tilfelli Samkeppniseftirlitsins á það við um samrunatilkynningar sem Samkeppniseftirlitið þarf eðli málsins samkvæmt alltaf að taka til skoðunar. Þegar tvö fyrirtæki vilja sameinast þá verður Samkeppniseftirlitið að fara yfir þann samruna og meta hvort það sé hættulegt samkeppnisumhverfinu á landinu að leyfa slíkan samruna. Þetta getur verið gríðarlega tímafrek vinna, mjög mannaflsfrek, en það er bara tekið eitt gjald sem er ekki í neinu samræmi við tímann og vinnuna sem fer í það að meta þetta. Það gerir það að verkum að Samkeppniseftirlitið hefur í raun ekki tíma til að sinna neinu með nægilega góðum hætti nema einmitt þessum samrunatilkynningum. Það mætti bæta þetta umhverfi með því að rukka almennilega og í takti við þá vinnu sem fer í samrunatilkynningar hjá Samkeppniseftirlitinu. Þannig að eins og ég er að koma hér inn á, virðulegur forseti, þá tel ég að það séu fleiri stofnanir sem gætu notið góðs af þessari nálgun sem er að finna í þessu frumvarpi. En það er ekki þar með sagt, eins og ég segi, að það eigi við um allar stofnanir.
Ég kom hérna fyrr í dag í andsvari að því að það er einmitt mjög skrýtin hugmyndafræði sem mér finnst oft vera undirliggjandi hjá ríkisstjórninni. Hún er á þá leið að Lánasjóður íslenskra námsmanna eigi að vera sjálfbær stofnun, að hún eigi einhvern veginn að borga sig sjálf, að þetta sé eitthvað sem ríkið sé ekki til í að borga með. Við viljum bara halda þessum lánasjóði, Menntasjóður námsmanna heitir þetta víst, gangandi á vöxtum sem nemendur sjálfir borga fyrir lánin sín. Þannig eigi þessi sjálfstæðu gæði, að eiga menntaða þjóð sem gefur samfélaginu til baka af sinni menntun, bara að vera eitthvað sem eigi bara að borga sig sjálft eins og samfélagið sé ekki til í að fjárfesta í því, a.m.k. ekki ríkissjóður, a.m.k. ekki þessi ríkisstjórn. Þetta á að vera sjálfbært. Það er alveg ótrúlegt að heyra þetta vegna þess að auðvitað á ríkið að borga með nemendum. Auðvitað á ríkið að borga með háskólanámi, einfaldlega vegna þess að það eru gæði í sjálfu sér að eiga vel menntaða þjóð. Það eru gæði í sjálfu sér að allir hafi aðgang að námi við hæfi. Þar finnst mér gefa augaleið að við þurfum ekki að vera að tala um sjálfbært kerfi þegar kemur að fjármögnun vegna þess að þetta er svo ótrúlega gefandi til baka fyrir samfélagið á svo margan annan hátt.
En svo getum við talað um iðnað sem er að skila jafnvel hundruðum milljarða í arð sem borgar sig varla sjálfur, eins og sjávarútveginn. Þar er ekki verið að tala um sjálfbærni í fjármögnun á eftirlitsregluverkinu sem þarf augljóslega að vera til staðar til að hægt sé að vera með viðhlítandi sjávarútveg á Íslandi. Við verðum að vera með eitthvert regluverk. Við verðum að vera með eitthvert eftirlit, það þarf að vera eitthvað sem tryggir að leikreglum sé fylgt, það sé ekki verið að svindla, að íslenskur fiskur haldi áfram að vera í hæsta gæðaflokki o.s.frv. Það hlýtur að vera öllum sem vinna í þessari grein til hagsbóta að kerfi sem þetta sé til, en samt er það ekki sjálfbært. Samt borgar kerfið ekki fyrir vel funkerandi Fiskistofu, vel funkerandi Hafrannsóknastofnun. Þetta eru allt stofnanir sem hafa þurft að sitja undir gríðarlegri aðhaldskröfu og geta ekki sinnt sínu hlutverki með viðhlítandi hætti, vantar starfsfólk, geta ekki verið með nægilega fullnægjandi eftirlit, lenda í úttekt hjá Ríkisendurskoðun sem kemur út algjörlega í svörtu. Hvað er það, virðulegi forseti? Af hverju er risaiðnaður eins og sjávarútvegurinn ekki sjálfbær þegar kemur að regluverkinu og utanumhaldinu sem þarf að vera með slíkum iðnaði, en stúdentar eiga að vera það? Ég bara skil ekki þessa hugmyndafræði, virðulegi forseti. Það sama mætti segja um, eins og ég hef komið inn á, Samkeppniseftirlitið. Mér finnst það mjög skökk heimssýn að líta svo á að stúdentar eigi bara að fjármagna sig sjálfir og við sjáum ekki fjárfestinguna í því að styðja vel við bakið á námsmönnum og leyfa þeim að lifa sómasamlegu lífi meðan þeir eru í námi og bæta ekki fjárhagsáhyggjum ofan á áhyggjur af því að ná prófum og að standa sig vel í náminu. Svo getum við ekki rekið mikilvægar eftirlitsstofnanir samfélagsins með sjálfbærum hætti.
Þetta finnst mér kannski vera stóra spurningin í þessu máli sem og öðrum þessu líkum, þ.e. að í einhverjum tilfellum er það vel til fallið að taka gjald fyrir veitta þjónustu eins og mengunareftirlit og annað, mér finnst alveg skýrt að það eigi að vera gjald greitt fyrir tímann sem fer í að sinna eftirliti með mengandi iðnaði eða hverju sem það nú er. En á sama tíma er það í sjálfu sér ekki nóg til að tryggja hagsmuni almennings heldur þurfum við einnig að tryggja viðhlítandi og stöðugan grunn fyrir þessar mikilvægu stofnanir. Og af hverju segi ég að þetta séu mikilvægar stofnanir fyrir hagsmuni almennings? Það hefur oft verið gerð svolítil grýla úr því sem hefur verið kallað eftirlitsstofnanir en horfum bara á hvað þær gera. Eigum við að teikna upp grýlu af stofnun sem tryggir að það sé eðlilegt samkeppnisumhverfi á Íslandi, að neytendur njóti góðs af því að það sé ekki hægt að okra á okkur í krafti einokunar? Er það einhvern veginn vont fyrir almenning að við eigum hérna umboðsmann Alþingis sem getur skorist í leikinn þegar stjórnvöld ganga á rétt einstaklinga? Eða er ekki mikilvægt að við séum með Fiskistofu sem hefur eftirlit með brottkasti og tryggir að farið sé eftir reglum um viðskipti með aflaheimildir? Þetta er allt almenningi til hagsbóta. Þetta er allt til að tryggja að fólk fari eftir settum lögum og reglum í kerfi sem snýst um að græða á auðlindum, hvort sem þær eru í viðskiptaheiminum eða þá meira konkret auðlindum eins og fiskinum í sjónum.
Mögulega er þetta frumvarp kannski skref í þá átt að þessi ríkisstjórn sé að vakna til vitundar um að það sé eitthvert virði í þessum stofnunum. Ég óttast að svo sé ekki af því að ég hef auðvitað orðið vitni að því, árin sem ég hef verið hér, hvernig okkar mikilvægu eftirlitsstofnanir hafa verið kerfisbundið veiktar og einmitt talaðar niður og látið eins og hér sé einhver eftirlitsiðnaður, það er oft dregið fram líka, og gert í raun kerfisbundið lítið úr mikilvægu hlutverki eftirlitsstofnana og talaðir niður varðhundar almennings gagnvart hagsmunaöflum. Mögulega er þetta skref í rétta átt. En eins og ég segi, reynslan sýnir mér annað, segir mér að þetta sé kannski bara til að tryggja að það sé yfir höfuð hægt að veita leyfi fyrir fleiri virkjunum sem er mikill æsingur í þessa dagana. Kannski er þetta bara út af því, stjórnvöld vilja geta sett það af stað, bara í þessum geira og þeim er sama um allt annað. En það má auðvitað að vona að þetta beri merki um nýja tíma og nýtt verðmætamat af hálfu þessarar ríkisstjórnar. En best væri auðvitað að við fengjum nýja sem væri með almennilegt verðmætamat og skilning á mikilvægi eftirlitsstofnana í lýðræðislegu samfélagi, almenningi öllum til heilla.