154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[19:50]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur kærlega fyrir hennar umfjöllun um þetta mál. Mig langaði kannski bara í beinu framhaldi af lokaorðum hennar varðandi mikilvægi eftirlitsstofnana fyrir fólkið í landinu að ræða þann punkt aðeins nánar af því að við vorum nú nokkur hér í umræðum um einmitt þetta atriði hér fyrr í dag, þ.e. af því að þetta frumvarp talar um að með þessum þjónustugjöldum verði Orkustofnun gert auðveldara að vinna leyfi hraðar og betur. En það er jú nefnt í þessu sama frumvarpi að markmiðið sé líka að byggja undir eftirlitið. Af því að við höfum lítið rætt um þann þátt málsins langar mig að koma inn á það sem hv. þingmaður nefnir um ákveðinn kúltúr gagnvart eftirlitsstofnunum sem Alþingi hefur sett á fót með lögum sem Alþingi hefur metið sem svo að þjóni tilgangi í þágu almannahagsmuna í þágu fólksins í landinu. Það er hægt að nefna þær stofnanir sem þingmaðurinn nefndi, það er t.d. Samkeppniseftirlitið, gríðarlega þýðingarmikil stofnun, ekki síst í landi þar sem markaðir einkennast af fákeppni, það er gríðarlega mikilvægt að Samkeppnisstofnun sé sterk á verðbólgutímum til þess einmitt að berjast gegn verðbólgunni og til að vera markviss í aðgerðum þar. En þessi kúltúr að þetta sé eitthvert íþyngjandi regluverk í öllum tilvikum og alltaf til þess fallið að flækjast fyrir fólki fremur en hitt að vinna í þágu fólksins — mig langaði bara til að spyrja hv. þingmann að því hvað hún sér fyrir sér eða trúir að búi að baki þess háttar orðræðu.